skipun stjórnlagaráðs.
Virðulegi forseti. Ég nota þetta tækifæri til að lýsa skoðun minni á því álitaefni sem rætt er. Mikil krafa var í aðdraganda síðustu alþingiskosninga um að það þing sem kosið var mundi ráðast í breytingar á stjórnarskrá. Það var því mikið áfall fyrir okkur sem hófum það ferli þegar Hæstiréttur komst að niðurstöðu sinni og samráðshópnum var viss vandi á höndum.
Hann kannaði fjórar leiðir til að koma málinu áfram: Uppkosningu, að lög um stjórnlagaþing yrðu tekin til endurskoðunar, að stjórnlagaþing yrði skipað af Alþingi og að farið yrði í endurtalningu atkvæða.
Ég lýsi yfir stuðningi mínum við þá ákvörðun sem meiri hluti samráðshópsins komst að. Ég tel að það sé mjög pragmatísk leið til að koma málinu áfram svo við getum uppfyllt eina af þeim óskum sem almenningur hafði fyrir síðustu alþingiskosningar og við heyrum að jarðvegur er fyrir meðal almennings. Við höfum líka séð það af könnunum að almenningi hugnast helst sú leið af þeim möguleikum sem til staðar eru til að koma málinu áfram og endurskoða stjórnarskrá okkar.
Í nefndaráliti hópsins segir, með leyfi frú forseta:
„Eftir að hafa vegið og metið kosti ólíkra leiða var það niðurstaða meiri hluta samráðshópsins að vænlegast sé með hliðsjón af öllum aðstæðum að Alþingi komi með ákveðnari hætti inn í endurskoðunarferlið þegar á þessu stigi með skipun stjórnlagaráðs og leysi þannig þann hnút sem endurskoðunarferlið er komið í. Með því nýtist jafnframt sá undirbúningur allur sem lagt hefur verið í og tafir á endurskoðunarferlinu verða litlar sem engar.“
Ég tek undir síðustu setninguna, að við reynum að minnka tafirnar.
Ég tel að þeir sem gagnrýnt hafa þá lausn hafi ekki komið með aðra betri. Mér finnst hún praktísk og ég held að hún sé farsæl. Ég skora á þingheim að styðja hana.