139. löggjafarþing — 85. fundur,  3. mars 2011.

skipun stjórnlagaráðs.

549. mál
[15:50]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mikið er ég sammála hv. þm. Pétri Blöndal um það að það var ekki stjórnarskráin okkar sem leiddi til hrunsins. Það sem leiddi til hrunsins, eins og ég sagði hér áðan, var það að hinir svokölluðu bankagangsterar fóru ekki að lögum og jafnvel aðilar í stjórnsýslunni líka. Það á eftir að koma í ljós þegar vinnu við rannsókn á hruninu verður lokið, og ætla ég ekki að fella áfellisdóma.

En einhvern veginn spratt hún upp úr jörðinni þessi krafa um að við þyrftum að breyta stjórnarskránni út af hruninu og að allt verði blómum skrýtt um leið og það er búið. Þetta er svipuð þráhyggja og ríkisstjórnarmeirihlutinn elur nú á um að allt verði grænt og fagurt á ný, og gamlir ljósastaurar fari að hlæja á ný, ef við samþykkjum Icesave. Við skulum átta okkur á því að verið var að beita landsmenn alla, og þingmenn, nokkurs konar andlegri kúgun, þar til í ljós kom að við gætum greitt atkvæði um Icesave-málið.

Mig langar að minna þingmanninn á að fyrir þinginu liggur frumvarp um lagaskrifstofu Alþingis, ekki veitir af. Hér koma fram frumvörp frá forsætisráðuneytinu og Stjórnarráðinu sem standast enga skoðun og við gerum ekki annað, við þingmenn, en að stunda lagabætur. Á dagskrá í dag er t.d. frumvarp um breytingar á lögum um þjóðaratkvæðagreiðslu því að komið hefur í ljós að það var afgreitt með svo miklum flýti að breyta þarf því áður en við fáum að greiða atkvæði um Icesave.

Þá kem ég að spurningunum.

1. Úr því að staðan er orðin eins og hún er var þá ekki hreinlegra að forsætisráðherra sjálfur hefði skipað þess 25 aðila til setu í þessari nefnd í stað þess að vera að blanda þinginu inn í þetta?

2. Úr því að farið var fram með þingsályktunartillögu til að blanda fólki hér inn í þessa vinnu, hefði ekki verið betra að taka nöfn þessara (Forseti hringir.) 522 einstaklinga sem gáfu kost á sér í pott og draga 25 nöfn (Forseti hringir.) úr í ljósi jafnræðis milli þeirra sem voru í framboði?