139. löggjafarþing — 85. fundur,  3. mars 2011.

skipun stjórnlagaráðs.

549. mál
[16:26]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Frú forseti. Ég er ein af þeim sem vilja breyta stjórnarskránni. Það var skýr krafa frá fólkinu í landinu eftir hrunið og það var skýr krafa þess stjórnmálaafls sem fleytti mér hingað inn á þing, þess afls sem ég starfa fyrir. Ég held að þetta sé kjörinn tími til að breyta stjórnarskránni því að eftir svona hrun eigum við að endurskoða þjóðfélag okkar.

Ástæðan er ekki sú að stjórnarskráin sé endilega ómöguleg — en hún er ekki okkar. Við Íslendingar vorum nýlenduþjóð og við fengum stjórnarskrána í afmælisgjöf frá kónginum okkar sem þá var. Við áttum bara að segja takk og amen án þess að hafa miklar skoðanir á málunum.

Nú loksins neyðumst við til að líta í spegilinn og ákveða hvernig þjóð við ætlum að vera og á hverju við ætlum að byggja samfélag okkar. Það er fullkomlega eðlilegt og skiljanlegt að um það standi barátta því að sumir vilja ekki breyta neinu. Ég held að Alþingi sé ekki vel til þess fallið að breyta stjórnarskránni vegna þess að það hefur sjálft hagsmuna að gæta og mér finnst sagan og fyrri tilraunir sem gerðar hafa verið sanna það. Það er enginn á móti mannréttindum alla vega ekki opinberlega, enda var það kannski minnsta málið að setja mannréttindakafla inn í þessa stjórnarskrá. En þegar kemur að öðrum umdeilanlegri atriðum þá vandast málið.

Þegar Hæstiréttur ákvað að ógilda kosningar til stjórnlagaþings þá vildi ég strax kjósa aftur og ég vildi taka Icesave með í pakkann og kjósa um það í leiðinni. Uppkosning hefði verið minn fyrsti kostur. Mér hefði fundist tilvalið að nota ferðina fyrst við þurftum hvort sem er að kjósa um Icesave og gera þetta tvennt í einu lagi. En sá tími sem var til stefnu var naumur vegna þess að ákveðin pressa var komin á Icesave-kosninguna og í því árferði sem nú er þá er eiginlega ekki réttlætanlegt að verja fé í kosningar með tveggja vikna millibili, það hefði varla verið réttlætanlegt að gera það. Það er kannski þess vegna sem við erum að ræða um stjórnlagaráð. Mitt leiðarljós í þessari vinnu, hvað sem verður ofan á, er það að ég vil breyta stjórnarskránni. Ég trúi því að við þurfum að gera það. Ég vil halda stjórnlagaþing eða stjórnlagaráð. Mér finnst ekki skipta öllu hvað það er kallað, það er hlutverk þess sem skiptir mestu máli.

Því miður býður stjórnarskráin okkar ekki upp á það að stjórnlagaþing geti verið bindandi og því var hið fyrirhugaða stjórnlagaþing bara ráðgefandi. Það sama á við um stjórnlagaráðið og það hefur ekkert breyst. En ég er ánægð með að tekið hafi verið á ýmsum ágöllum í lögunum um stjórnlagaþing. Til dæmis var valddreifingin þar mjög undarleg, þar var mikil miðstýring með svokallaðri forsætisnefnd sem var mjög valdamikil og t.d. voru ekki allir stjórnlagaþingmenn í nefndum. Þetta hefur allt verið lagað og mér finnst það til bóta. En mér finnst mikilvægast að við reynum að treysta sjálfstæði stjórnlagaráðsins og ég held að það skipti öllu máli að þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur þess fari fram. Helst þannig að hægt verði að velja á milli ákveðinna valkosta ef stjórnlagaráðið er ekki sammála um leiðir, að þjóðin fái þá að velja á milli ákveðinna greina og kosið verði sérstaklega um hverja grein fyrir sig. Þetta finnst mér að þurfi að gerast áður en Alþingi fær frumvarpið til meðferðar.

Ég styð skipun Alþingis í stjórnlagaráð vegna þess að úr því sem komið er held ég að það sé besta leiðin. Sterkustu rökin finnst mér vera þau að allir þeir ágallar sem bent var á í ákvörðun Hæstaréttar höfðu ekki áhrif á það sem kom upp úr hinum gölluðu kjörkössum. Það hefur enginn sýnt fram á að niðurstaðan hefði átt að vera á annan veg. Ég vil líka benda á að Alþingi hefur fullt umboð til að skipa hvaða íslenska ríkisborgara sem er í stjórnlagaráð. Hér erum við með 25 manns sem buðu sig fram til verksins og 80 þúsund Íslendingar völdu. Það væri algerlega fáránlegt að sniðganga þau við skipun í stjórnlagaráð. (TÞH: Sá sem fékk flest atkvæði fékk 8.000.) Það voru 80 þúsund manns sem tóku þátt í þessari kosningu og hvað sem lengd blýanta, hæð skilrúma eða hvernig kjörkassar voru innsiglaðir líður voru það þessi 25 sem kjósendur völdu og mér fyndist algerlega fáránlegt að sniðganga þau þegar við skipum í stjórnlagaráðið. Það væri beinlínis ranglátt og ólýðræðislegt að skipa einhverja aðra ef Alþingi dytti það í hug.

Forseti. Baráttan um Ísland stendur núna og það er alveg ljóst að ýmis öfl í samfélaginu vilja ekki breyta stjórnarskránni. Ég ætla ekki að leggja lóð á vogarskálar þeirra og því styð ég tillögu um stjórnlagaráð.