skipun stjórnlagaráðs.
Forseti. Ég svara því fyrir mig — ég hef ekkert umboð til að tala fyrir þingflokkinn, afstaða okkar hefur legið fyrir í þessu máli hingað til — að ég er ekki þeirrar skoðunar að við eigum að fara þá leið. Ég hefði talið eðlilegt ef menn vilja fara hana að kjósa úr sama hópnum. Ég mælti fyrir því og gerði grein fyrir því í ræðu minni. Ég hefði talið farsælla í ljósi þess hvernig fyrir þessu máli fór við úrskurð Hæstaréttar að menn hefðu frekar sameinast um að víkka út umboð þeirrar stjórnlagaþingsnefndar sem átti að vinna grunninn undir stjórnlagaþingið. Það nefndi ég í ræðu minni, hv. þingmaður. En ef vilji stjórnarmeirihlutans stendur til þess að halda því til streitu að það fólk sem á að fara þarna inn og ganga þessa götu til enda, og sniðganga með þeim hætti niðurstöðu Hæstaréttar að mati hæstv. innanríkisráðherra, hefði ég talið eðlilegra að stjórnarmeirihlutinn færi þá leið að velja hina svokölluðu uppkosningu. Sjálfur mæltist ég til þess og taldi eðlilegra að sú leið væri farin til að ná meiri samstöðu en raun ber vitni um í þessu máli að stjórnmálaflokkarnir reyndu frekar að sammælast um að víkka út umboð stjórnlagaþingsnefndar.