skipun stjórnlagaráðs.
Hæstv. forseti. Það sem hv. þm. Vigdís Hauksdóttir spurði mig um í lok ræðu sinnar er atriði sem þarf að fara yfir í allsherjarnefnd þegar málið kemur þangað. Það er rétt að hafa í huga að kosningaúrslitin í stjórnlagaþingskosningunni í nóvember áttu að ákvarðast af sérstökum úthlutunarreglum sem byggðu í meginatriðum á „single transferable vote“-kerfinu, ég man ekki íslensku þýðinguna á því. Þegar einhverjir einstaklingar kjósa að taka ekki sæti verði ákveðin röskun á jafnvægi kosningaúrslitanna miðað við það sem ella hefði orðið. Ef t.d. einstaklingar í hópi 25-menninganna í nóvember hefðu ekki náð sæti, ef svo má segja, hefðu atkvæðin gengið til þeirra sem neðar voru á atkvæðaseðlinum og það hefði getað leitt til annarrar niðurstöðu. Ef ætlunin væri að fylgja hugmyndafræði „single transferable vote“-kerfisins til enda þyrfti, að mér sýnist, að setja allar tölvurnar aftur í gang og telja og reikna allt upp á nýtt — alla vega að reikna allt upp á nýtt. Ég kann ekki tæknilegu atriðin í þessu en mér finnst hins vegar mjög eðlilegt að um það atriði verði spurt í allsherjarnefnd þegar málið kemur þangað. Ég hugsa að það geti skipt talsverðu máli þegar upp er staðið. Það sýnir kannski að það er ákveðinn galli við þá hugmynd (Forseti hringir.) að ætla að ganga niður listann eins og hann leit út 27. nóvember ef einhver vill ekki þiggja sæti.