139. löggjafarþing — 85. fundur,  3. mars 2011.

skipun stjórnlagaráðs.

549. mál
[19:29]
Horfa

Mörður Árnason (Sf) (andsvar):

Forseti. Það er með nokkuð blendnum tilfinningum sem ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar, ég skildi það ekki að fullu og verður að forláta mér því að ég er ekki jafnvanur í lögum og hv. þingmaður og ekki jafnútfarinn í krókaleiðum þingstarfanna og þingmaðurinn er. Ég skildi það ekki að hann gat ekki fullyrt að tillagan væri þingtæk en taldi þó að hún væri lögleg, að leiðin væri sem sé lögleg þótt þingsályktunartillagan sjálf kynni að vera óþingtæk. Ég verð að viðurkenna að þetta skil ég ekki alveg.

En það sem skiptir máli í þessu er það að nú hefur hv. þm. Birgir Ármannsson tekið undir með flokkssystur sinni, hv. þm. Ragnheiði Elínu Árnadóttur, um að þingsályktunartillagan, réttara sagt sú leið sem þar er farin, er lögleg og þar með er hér um skoðanamun að ræða, um pólitískan ágreining og smekksmun. Það skiptir öllu máli því að þingmenn Sjálfstæðisflokksins (Forseti hringir.) hafa hingað til talið að hér sé verið að gera uppreisn gegn Hæstarétti (Forseti hringir.) og hér fari fram einhvers konar valdarán. Þess vegna hlýtur maður að fagna því að þeir hafa látið af þeirri skoðun sinni. (Forseti hringir.)