staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir að gefa mér tækifæri til að skýra betur þennan þátt. Það er hárrétt athugað hjá hv. þingmanni að auðvitað er það ekki þannig um alla þá aðila sem lagðar eru fésektir á og ekki innheimtast að hjá þeim hafi öllum verið eignir sem hafi verið skotið undan. Það er auðvitað þannig, eins og kom fram í máli hv. þingmanns, að stundum geta þetta hafa verið eignabólur eins og hann lýsti ágætlega. Stundum geta skattsvikin auðvitað átt rót sína að rekja til fjárhagserfiðleika og menn hafa freistast til þess að brjóta lögin til að grípa til ráðstafana í erfiðleikum og þar af leiðandi hafa ekki verið neinir fjármunir til að greiða sektir. En það er full ástæða til að ætla, meðal annars vegna þess að við höfum ekki haft nægilegan aga í utanumhaldinu um hlutafélög, að allnokkur dæmi séu um að það hafi verið eignir í félögum þar sem rannsóknir hófust sem ekki voru lengur til staðar þegar ferlinu var lokið. Þetta mál veitir skattrannsóknarstjóra auðvitað bara heimildir til að kyrrsetja eignir sem eru til. Því ef engar eignir eru til hjá viðkomandi aðilum er náttúrlega ekkert til að kyrrsetja.