hagvöxtur.
Frú forseti. Allt frá því að við hófum samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn á haustdögum ársins 2008 höfum við stefnt að því að ná aftur í gang hagvexti í landinu. Samkvæmt þeim spám sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði fyrir okkur og með þá áætlun sem við gengumst undir og áttum í samstarfi við sjóðinn um á þeim tíma átti hagvöxtur að vera kominn á góða siglingu á því ári sem nú er nýhafið, á árinu 2011.
Í síðustu viku birti Hagstofan nýjar upplýsingar um landsframleiðslu síðasta árs. Þar kemur fram að samdrátturinn á síðasta ári var meiri en gert var ráð fyrir í fjárlögum fyrir árið 2010. Hann var m.a.s. meiri en gert var ráð fyrir í fjárlögum yfirstandandi árs, þ.e. þegar við ræddum hér á haustþinginu um árið 2010 gerðum við ráð fyrir minni samdrætti en Hagstofan segir að hafi orðið raunin. Samdrátturinn í fyrra var meiri en Hagstofan sjálf gerði ráð fyrir og reyndar var það einungis ASÍ sem spáði fyrir um jafnmikinn eða meiri samdrátt á árinu 2010 en Hagstofan segir að hafi orðið raunin. Þetta eru alvarleg tíðindi vegna þess að það eru ekki enn þá komin nein skýr merki um að hagvöxtur hafi tekið við sér.
Hæstv. fjármálaráðherra hefur ítrekað komið hér upp allt frá því að þing kom saman í október og lýst því yfir að landið sé að rísa og hagvöxtur að taka við sér. Hvaða raunverulegu merki eru í hagkerfinu í dag um að hagvöxtur sé að taka við sér? Mér sýnist að það sé rétt sem við höfum sagt allan tímann, að aðgerðir ríkisstjórnarinnar séu til að halda hagvextinum niðri með því að ráðast gegn grunnatvinnugreinunum og vera með skattahækkanir (Forseti hringir.) og þá fáum við ekki hagvöxtinn í gang. Ég vil þess vegna biðja hæstv. fjármálaráðherra að koma hingað og lýsa því fyrir okkur hvað gefi honum tilefni til að ætla að hagvöxtur fari í gang á næstunni.