139. löggjafarþing — 86. fundur,  14. mars 2011.

hagvöxtur.

[15:10]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S):

Frú forseti. Eins og heyra mátti af máli hæstv. ráðherra eru engin skýr merki um að hagvöxtur sé að taka við sér. Staðreyndin er sú að hagvöxtur fer ekki af stað á Íslandi fyrr en við fáum alvörufjárfestingu, erlenda fjárfestingu inn í landið til að drífa hjól atvinnulífsins í gang og skapa ný störf.

Það er í sjálfu sér rétt sem ráðherrann segir, það hefur tafist um of að vinna að endurskipulagningu fjármálafyrirtækjanna og heimilanna. Það er líka rétt hjá hæstv. ráðherra að það eru teikn um að samdrættinum sé að verða lokið, en við þurfum miklu sterkari viðspyrnu. Við þurfum yfir 3% hagvöxt, kannski 4% hagvöxt nokkur ár í röð til að endurheimta þau 20 þús. störf sem við höfum glatað niður vegna krísunnar. Það er verkefnið sem við okkur blasir. (Forseti hringir.) Það er algerlega óásættanlegt að menn komi hingað upp og segi að þetta sé vegna þess að mælingarnar séu ótryggar og að menn hafi fyrirvara á því. Það blasir við hverjum manni að við erum í algerri stöðnun og við verðum að fara að fá alvöruviðspyrnu (Forseti hringir.) til að koma hlutunum aftur í lag.