139. löggjafarþing — 86. fundur,  14. mars 2011.

eftirlit menntamálaráðuneytisins með samningum.

[15:32]
Horfa

Skúli Helgason (Sf):

Virðulegi forseti. Á undanförnum mánuðum höfum við fengið upplýsingar um alvarlegar brotalamir í íslenska stjórnkerfinu á liðnum árum sem lúta meðal annars að slælegu eftirliti með meðferð opinbers fjár, vanrækslu þegar kemur að brýnni ógn við heilbrigðisöryggi o.s.frv. Skýrustu dæmin eru mál sem tengjast díoxíðmengun vegna sorpbrennslustöðva á þremur stöðum í landinu, málefni Árbótar og annarra vistheimila og málefni Menntaskólans Hraðbrautar þar sem vafasöm fjármálaumsýsla fékk að þrífast í skjóli afskiptaleysis stjórnvalda. Skýrsla Ríkisendurskoðunar, um framkvæmd þjónustusamnings ríkisins við Menntaskólann Hraðbraut, opinberaði hvernig mennta- og menningarmálaráðuneytið vanrækti eftirlitshlutverk sitt með ráðstöfun þess fjármagns sem skólinn fékk greitt úr ríkissjóði.

Ekki er þörf á að rifja upp í smáatriðum einstök atriði þess máls en ég vil beina kastljósinu að því sem skiptir öllu máli fyrir okkur í löggjafarsamkundunni sem á að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu, þ.e. spurningunni um viðbrögð stjórnsýslunnar við þeirri gagnrýni sem kom fram hjá Ríkisendurskoðun í skýrslu stofnunarinnar síðasta haust og þá einkum hvaða lærdóm menn í stjórnsýslunni ætli að draga af mistökum sem gerð voru í fortíðinni.

Virðulegi forseti. Það verða gerð mistök í íslenskri stjórnsýslu eins og annars staðar í mannheimum, að sjálfsögðu. En það er hlutverk okkar að tryggja að viðbrögð við mistökum séu fumlaus og markviss. Ég vil því spyrja hæstv. menntamálaráðherra hvernig ráðuneyti hennar hefur brugðist við þeirri gagnrýni sem beindist að ráðuneytinu í skýrslu Ríkisendurskoðunar og þá sérstaklega hvað hafi verið gert til að styrkja eftirlitshlutverk ráðuneytisins með þeim fjölmörgu þjónustusamningum sem gerðir hafa verið á liðnum árum við aðila í mennta- og menningarmálageiranum.