139. löggjafarþing — 92. fundur,  15. mars 2011.

staða atvinnumála.

[15:04]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Frumforsenda þess að fyrirtæki leggi í fjárfestingar er að sæmilegur stöðugleiki ríki í efnahagsmálum. Okkur hefur miðað vel áfram að þessu leyti, verðbólga hefur rénað mjög að undanförnu og árshækkun er nú undir 2%. Gengi krónunnar hefur styrkst og vextir hafa lækkað. Þegar ríkisstjórnin tók við voru stýrivextir Seðlabankans 18% en eru nú 3,5–4,25%. Ég minni einnig á ótvíræðan árangur í ríkisfjármálum og rifja upp að halli ríkissjóðs var áætlaður 216 milljarðar kr. árið 2008 en var kominn niður í 36 milljarða 2011. Allt þetta skiptir auðvitað máli fyrir umhverfi fyrirtækja í landinu.

Til marks um árangur í þeim efnum nefni ég nýlegar tölur Hagstofunnar um tekjudreifingu, um það að við höfum hlíft kjörum þeirra tekjulægstu sem sýnir að fólki undir lágtekjumörkum hefur fækkað frá 2007 þrátt fyrir mikið aukið atvinnuleysi. Góður árangur hefur verið í utanríkisverslun, undirliggjandi viðskiptaafgangur nemur að mati Seðlabanka Íslands 6,4% af landsframleiðslu. Þetta gerir okkur kleift að styrkja gjaldeyrisforðann og auðveldar okkur að losa um og aflétta gjaldeyrishöftunum.

Áætlanir Seðlabankans sýna einnig að skuldastaða þjóðarbúsins fer hratt batnandi og það segir okkur að við erum á beinu brautinni og höfum svigrúm til uppbyggingar. Öllum hlýtur að vera ljóst að tveir helstu óvissuþættirnir sem steðja að þjóðarbúinu núna eru kjarasamningar og Icesave. Á þessum þáttum geta hagvaxtarhorfur oltið, áform um afnám gjaldeyrishafta og þar með atvinnuuppbyggingin öll. Aðilar vinnumarkaðarins telja að viðunandi niðurstaða í Icesave sé m.a. það sem marki línuna til hve langs tíma verður samið.

Nú er talið að hagvöxtur á þessu ári verði hugsanlega ekki nema um 2%, ekki 3% eins og áður var áætlað vegna lakari horfa um fjárfestingu sem áður var metin. Er það vissulega áhyggjuefni en við verðum að hafa í huga að hvert prósentustig í hagvexti skilar þjóðarbúinu um 15 milljörðum kr. í tekjur.

Á Íslandi eru næg tækifæri. Ekki síst eru þau í útflutningi sem nýtur þess í ríkum mæli að raungengi er lágt nú um stundir. Miklar skuldir fyrirtækja eru ein stærsta hindrun þess að þau leggi í nýjar fjárfestingar. Skuldir sliga bæði fólk og fyrirtæki og ekki skal úr því dregið. Vissulega dregur úr þeim þrek og þor til fjárfestinga og neyslu. En aðgerðir eru nú hafnar við að vinna okkur í gegnum skuldaklafann og það þekkja þingmenn að sett hefur verið upp hraðbraut til að fást við skuldamál lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem sannarlega eru hryggjarstykkið í íslensku atvinnulífi. Aðgerðirnar miða að því að laga heildarskuldsetningu fyrirtækja að rekstrarumhverfi þeirra og því verki verður væntanlega lokið á sumri komanda. Reiknað er með að allt að 7.000 fyrirtæki geti nýtt sér þetta úrræði. Ég bind miklar vonir við að með þessari aðgerð kvikni ný tækifæri og fjárfesting, bæði hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum.

Aðgerðum vegna skuldavanda heimilanna miðar vel áfram en þær munu hafa veruleg áhrif til að glæða innlenda eftirspurn og auka þannig umsvif í þjóðarbúskapnum. Það er stundum talað, eins og hér hefur verið gert, eins og að ekkert sé að gerast í fjárfestingarmálum. Staðreyndin er sú að fjölmörg fjárfestingarverkefni eru í gangi og önnur eru á teikniborðinu. Ríkisvaldið hefur ráðist í margháttaðar aðgerðir til að styðja við atvinnulífið og hvetja til dáða með átaksverkefnum ýmiss konar og fjárfestingarsamningum.

Sannleikurinn er sá að þúsundir starfa hafa verið varðar sem og nýsköpun hér á landi undanfarin ár vegna aðgerða ríkisvaldsins í atvinnumálum. Ef litið er til þeirra framkvæmda sem eru í undirbúningi og ef sátt næst um fjármögnun þeirra eins og í vegamálum verða hér sköpuð 2.200–2.300 ársverk fljótt og 500–600 bein varanleg störf við framtíðarrekstur. Hér er um að ræða aukna afkastagetu álversins í Straumsvík og framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun, byggingu kísilmálmverksmiðju í Helguvík, hreinkísilverksmiðju í Grindavík og natríumklóratverksmiðju á Grundartanga. Ráðherranefnd um atvinnumál mun samhæfa aðgerðir á sviði atvinnumála og vinnuhópar undir ráðherranefndinni hafa þegar tekið til starfa um atvinnumál og sköpun starfa, m.a. í samræmi við Ísland 20/20 og vinnumarkaðsúrræði fyrir atvinnuleitendur og menntunarúrræði.

Ég bind miklar vonir við þennan vettvang en eitt brýnasta verkefnið fram undan er að vinna úr atvinnuleysinu og ná upp hagvextinum. Að því erum við m.a. að vinna í samráði við aðila vinnumarkaðarins nú í tengslum við kjarasamninga.