139. löggjafarþing — 92. fundur,  15. mars 2011.

staða atvinnumála.

[15:13]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Frú forseti. Það er brýnt að ræða atvinnumál og gott að fá umræðu um þau utan dagskrár. Tölur sem hafa birst í vikunni um að nærri því 5.000 manns hafi verið atvinnulausir í ár eða meira eru mjög alvarlegar upplýsingar. Það er ávísun á örorku- og bótaþega til framtíðar litið. Erlendar rannsóknir hafa á fleiri en einum stað sýnt fram á að sé fólk atvinnulaust í sex mánuði eða lengur er mjög ólíklegt að það komist nokkurn tímann aftur inn á vinnumarkað. Ég geri mér ekki grein fyrir því hvers vegna aðstæður ættu þannig séð að vera öðruvísi á Íslandi en í nágrannalöndunum.

Það er mjög brýnt að koma fólki aftur til vinnu og þótt fyrr hefði verið. Ég leyfi mér í því sambandi að minna á að Hreyfingin lagði í haust fram frumvarp sem hefði búið til 400–600 störf með mjög skömmum fyrirvara ef það hefði fengið framgang á þinginu. Það mál liggur enn þá í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd. Það á að vísu að taka það þar á dagskrá í fyrramálið sem betur fer. Það snýr einfaldlega að því að allur sjávarafli verði boðinn til sölu á innlendum uppboðsmarkaði áður en hann er fluttur óunninn úr landi í gámum. Það gefur innlendum fiskverkendum tækifæri sem þeir annars fá ekki til að vinna aflann hér heima. Fiskverkun er nokkuð sem Íslendingar kunna og þessi störf væri hægt að búa til á um tveimur vikum. Það hefur ekkert verið gert í þessu máli síðan í haust og þar er við sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd þingsins að sakast. Vonandi mjakast þetta í gegnum nefndina á fundinum á morgun.

Áköll um álver og stóriðju eru einfaldlega áköll um áframhaldandi biðstöðu og atvinnuleysi. Við vitum að slíkar framkvæmdir komast ekki í gagnið nema á löngum tíma og þess vegna er brýnt að leitað sé fleiri leiða og betri úrræða til að styrkja stöðu atvinnulausra og koma þeim aftur í gang. Það er hörmulegt (Forseti hringir.) að vera atvinnulaus og það er mjög dýrt fyrir samfélagið til framtíðar. (Forseti hringir.)