139. löggjafarþing — 92. fundur,  15. mars 2011.

staða atvinnumála.

[15:23]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólöfu Nordal fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga efni. Það er rétt sem komið hefur fram í máli þingmanna, Íslendingar eru ekki vanir miklu atvinnuleysi. Það eru ekki til kynslóðir á Íslandi, sem betur fer, sem hafa alist upp við það að atvinnuleysi sé vandamál til langs tíma. Þetta er að mestu leyti óþekkt, a.m.k. í þjóðarsál þeirra kynslóða sem eru nú í landinu. Þess vegna má eiginlega segja að það sé sameiginlegt verkefni okkar allra, ekki bara stjórnar, heldur í rauninni alls samfélagsins að taka á þessum málum.

Það hefur komið fram í umræðunni að lítið sé gert og engin verkefni í gangi. Mig langar samt að nefna nokkur allstór verkefni sem við vitum að eru í gangi, að fara í gang eða munu fara í gang á þessu ári og næstu missirum. Við erum að fara af stað með byggingu Landspítalans. Það var einmitt fundur um það í dag. Á byggingartímanum munu skapast milli 800 og 1000 störf. (Gripið fram í: Hver á að …?) Við erum að fara af stað með Vaðlaheiðargöng fyrir norðan. Búðarhálsvirkjun fer vonandi af stað annaðhvort á þessu ári eða því næsta. Það á að fara að byggja kísilverksmiðju suður í Reykjanesbæ o.s.frv. Menn mega ekki alltaf tala niður allt það sem verið er að gera, heldur verðum við líka að horfa til þess að þrátt fyrir allt eru að verða til verkefni og komast af stað verkefni sem munu skipta máli.

Ferðaþjónustan er í stöðugum vexti. Þar skapast á hverju ári hundruð nýrra starfa. Nægir þar að nefna á þessu ári verkefni eins og þær hugmyndir sem eru í Borgarfirðinum, um miðaldaböð við Deildartunguhver og borverkefni á Langjökli til að skoða hvernig hægt er að nota hann meira til ferðaþjónustu o.s.frv.

Virðulegi forseti. Ég held að við eigum að horfa þannig á að það sé (Forseti hringir.) sameiginlegt verkefni okkar allra, allra flokka á þingi og alls samfélagsins, (Forseti hringir.) að vinna að leiðum til að kveða þetta niður, en vera ekki í sífellu að kýtast um það hver hafi (Forseti hringir.) réttast fyrir sér á hverjum tíma.