139. löggjafarþing — 92. fundur,  15. mars 2011.

framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna.

557. mál
[16:05]
Horfa

Frsm. minni hluta allshn. (Vigdís Hauksdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Pétri Blöndal fyrir fyrirspurnina. Það er þetta sem ég er að gagnrýna, að það skuli vera komin tillaga um að hafa svo galopna grein í lögunum um kærur. Þetta er svo matskennt þó að við tökum ekki nema frá einum tíma til annars. Það sem var alveg bannað hér fyrir 10–15 árum þykir sjálfsagt í dag o.s.frv. Þannig verður réttarþróun.

Varðandi það sem borgarstjóri segir einhvers staðar á einhverjum blaðamannafundi úti í heimi dæmir sig sjálft. Auðvitað getum við ekki sagt já 9. apríl, hann ætlar nú að kjósa 8. apríl skildist mér á fréttinni, og haldið að málið gufi upp því að þá fyrst fáum við að finna fyrir því hvernig það er að sitja uppi með Icesave-klafann.

Það sem ég er líka að benda hér á er ákvæði sem er komið þarna inn eftir að allsherjarnefnd fékk í hendurnar nokkurs konar skýrslu frá manni sem situr í landskjörstjórn. Það voru mjög róttækar og frjálslegar talningaraðferðir í Ráðhúsinu og það kemur hér fram í nefndaráliti við stjórnlagaráðið, sem er ekki búið að dreifa því að það er verið að keyra þessi mál hér með miklu hraði í gegnum þingið, en í nefndarálitinu sem ég er að skila kemur fram að það hafi verið farið svo frjálslega með talninguna að þegar vélin náði ekki að telja atkvæðin breytti bara talningarfólkið með penna eða blýanti tölunum til að námunda þær við tölur sem voru á einstaklingum í framboði. Þetta er alveg galið, en það er mjög gott að þetta komst upp því að það er alltaf verið að tala hér um að þeir sem eru á móti því að stjórnlagaþingið verði ekki, sem er náttúrlega ríkisstjórnin því að það er búið að blása stjórnlagaþingið af, hafi gert lítið úr því að Hæstiréttur komst að því að kosningin væri ógild vegna galla (Forseti hringir.) á kosningunni. Hæstiréttur hafði ekki (Forseti hringir.) þessa vitneskju sem landskjörstjórnarmenn (Forseti hringir.) og talningarmenn hafa yfir að ráða. (Forseti hringir.)