framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna.
Virðulegi forseti. Það er eðlilegt að aðilar heyi kosningabaráttu, hvort sem er til sveitarstjórna, forsetakjörs, Alþingis eða jafnvel þjóðaratkvæðagreiðslna. En það er mjög óeðlilegt eins og þingmaðurinn fór hér yfir að Samtök atvinnulífsins, ASÍ og hinar opinberu stofnanir skuli allar leggjast á sveif með ríkisvaldinu til að tryggja að já komi út úr þessari kosningu. Það er mjög óeðlilegt en það eitt og sér getur ekki leitt til ógildra kosninga að mínu mati. Það er ekki galli á kosningunum sjálfum nema þessir aðilar stæðu hreinlega við kjörstaði og bæru fé á fólk. Þá væri hægt að kæra það því að þá væri það meiri háttar galli á kosningunni.
Hér er verið að setja inn ákvæði sem snúa t.d. að því að það sé verið að hjálpa fólki á kjörstað, tala í heyranda hljóði, það sé verið með áróður inni í kjördeild og annað. Í þessu frumvarpi er verið að ræða um þannig galla sem er verið að takmarka mjög mikið. Hver á að meta hvaða galli hefur áhrif á úrslit kosninganna og hvaða galli ekki?
Ég tek undir hvert orð sem þingmaðurinn sagði, t.d. með ESB. Ég held að Alþingi leggi sjálft til einar 40 milljónir í kynningarstarf til já- og nei-hreyfinga. Þjóðaratkvæðagreiðslur ganga yfirleitt út á já eða nei. Stundum er svarið kannski, en þá eru það náttúrlega bara auðir seðlar. Til að tryggja jafnræði í þjóðaratkvæðagreiðslum verða stjórnvöld sjálf að leggja fjármagn til þeirrar baráttu sem ég veit ekki að sé verið að gera í Icesave-kosningunni. Það er lagt á ríkisvaldið að vera með kynningarefni svo fólk geti fræðst um málið með og á móti. Núna liggur fyrir þingsályktunartillaga þar sem hnykkt er á þessu atriði. Staðan er vissulega slæm, já-hreyfingin er svo langtum sterkari (Forseti hringir.) og verst af öllu er að fjölmiðlar skuli taka þátt í því.