framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna.
Virðulegi forseti. Ég ætla svo sem ekki að hafa mjög mörg orð um þetta mál sem við ræðum hér, frumvarp til laga um breytingu á lögum um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna, en vildi þó koma nokkrum sjónarmiðum á framfæri. Eins og segir í því nefndaráliti sem liggur hér frammi eru með frumvarpinu lagðar til nauðsynlegar lagfæringar á lögum um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna, m.a. til þess að skýra hlutverk landskjörstjórnar og yfirkjörstjórna. Þetta er gert núna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu sem fyrirhuguð er um Icesave-samninginn sem samþykktur var á Alþingi en forseti Íslands synjaði staðfestingar með vísan til 26. gr. stjórnarskrárinnar.
Það er auðvitað ljóst að nauðsynlegt er að gera breytingar á núgildandi lögum um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna enda hafa kosningar á Íslandi ekki gengið sérstaklega vel fyrir sig upp á síðkastið. Er þar skemmst að minnast kosningar til stjórnlagaþings sem var svo miklum annmörkum háð að Hæstiréttur Íslands ógilti kosninguna eins og frægt er.
Þetta frumvarp er þingmannafrumvarp flutt af nokkrum hv. þingmönnum í allsherjarnefnd Alþingis. Formaður nefndarinnar, hv. þm. Róbert Marshall, hefur mælt fyrir því nefndaráliti sem meiri hlutinn lagði fram og undir það ritaði ég með fyrirvara. Ég vil bara segja í tengslum við þetta mál að aðkoma mín hefur verið sú að reyna að leggja eitthvað gott til málanna til að tryggja að sú þjóðaratkvæðagreiðsla sem fram undan er geti farið snurðulaust fram þannig að sagan endurtaki sig ekki, þ.e. að upp komi ágreiningur sem snýr að framkvæmd kosninganna sem leiddi til þess að ágreiningur færi fyrir dómstóla. Þetta hefur verið mitt upplegg í málinu, þ.e. að reyna að koma málum þannig fyrir að framkvæmd komandi þjóðaratkvæðagreiðslu verði í lagi öfugt við kosninguna til stjórnlagaþings.
Ég gerði fyrirvara við það nefndarálit sem hér liggur frammi eins og félagi minn í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Birgir Ármannsson. Sá fyrirvari laut í rauninni að því atriði sem fjallað er um í nefndarálitinu og snýr að kæruleiðum. Í nefndarálitinu segir að hv. allsherjarnefnd hafi fjallað sérstaklega um þær kæruleiðir sem eru í lögunum samanborið við þær sem eru í lögum nr. 4/2010, um þjóðaratkvæðagreiðslu um gildi laga nr. 1/2010, þ.e. um Icesave-lögin.
Í nefndarálitinu segir, með leyfi forseta:
„Samkvæmt 12. gr. þeirra skulu kærur um ólögmæti þeirrar atkvæðagreiðslu, aðrar en refsikærur, sendar landskjörstjórn til úrlausnar eigi síðar en tveimur dögum fyrir fund þann sem getið er um í 10. gr. sömu laga. Í skýringum við ákvæðið kemur fram að kærur um ólögmæti atkvæðagreiðslunnar og meðferð þeirra verði sendar landskjörstjórn til úrlausnar eins og þar greinir. Kemur fram að þar sé um að ræða sambærilegt fyrirkomulag og í forsetakosningum, að því frátöldu að landskjörstjórn hefði með höndum þau störf sem Hæstiréttur hefur í forsetakosningum. Dómstólar eigi svo úrskurðarvald um gildi ákvörðunar landskjörstjórnar í samræmi við almennar reglur ef á reyndi.“
Í nefndarálitinu segir líka síðar í þessum kafla um kæruleiðir að meiri hlutinn telji að „í ljósi þess að framkvæmd þeirrar atkvæðagreiðslu [þ.e. þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samninginn] gekk vel sé rétt að fela landskjörstjórn úrskurðarvald um lögmæti atkvæðagreiðslunnar og leggur því jafnframt til að við frumvarpið bætist ný grein sem felur í sér breytingar á 10. gr. laganna til samræmis við 1. mgr. 10. gr. laga nr. 4/2010“.
Ég tek undir það sjónarmið að síðasta þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave-málið gekk vel en þó reyndi ekki á það hvernig fara ætti með ágreining sem upp kynni að koma í tengslum við þá kosningu. Almennt tel ég að hún hafi farið vel fram og þá á ég ekki bara við að forminu til, heldur var ég ákaflega ánægður með niðurstöðuna líka. Ég tek undir þau sjónarmið sem fram koma í nefndarálitinu.
Það sem ég setti spurningarmerki við var hvað gerðist ef upp kæmi ágreiningur um framkvæmd kosninganna. Miðað við þá breytingu sem hér er lögð til er landskjörstjórn falið ríkara úrskurðarvald en var t.d. í tengslum við kosninguna til stjórnlagaþings. Engu að síður er það svo, miðað við það frumvarp sem við ræðum hér og þá leið sem meiri hluti nefndarinnar leggur til, að felli þeir sem gera ágreining um framkvæmd kosninganna sig ekki við niðurstöður landskjörstjórnar leiðir auðvitað af almennum reglum að það eru dómstólar sem eiga úrskurðarvald um gildi ákvörðunar landskjörstjórnar og þá í samræmi við almennar reglur. Ég hef orðið var við það í umræðunni að menn hafa haft áhyggjur af því að með þessari breytingu sé hugsanlega verið að koma í veg fyrir aðkomu dómstóla að kærumálum eða ágreiningsmálum sem upp kunna að koma í tengslum við framkvæmd kosningarinnar. Ég tel að með þeirri leið sem hér er farin þurfi hv. þingmenn ekki að óttast það.
Ég reifaði hins vegar þau sjónarmið í nefndinni og vildi koma þeim á framfæri að ég hefði efasemdir um að slíkan ágreining þyrfti að reka í gegnum tvö dómstig, þ.e. fyrst héraðsdóm og síðan Hæstarétt, sætti menn sig ekki við niðurstöðu héraðsdóms, og þá með áfrýjun. Ég taldi í ljósi eðlis þeirra mála sem falla undir þessi lög að það kynni að vera eðlilegt að í framkvæmd yrði niðurstöðum landskjörstjórnar einfaldlega vísað beint til Hæstaréttar án þess að héraðsdómstólarnir kæmu að málinu, einfaldlega vegna þess að kosningar og kosningaúrslit eru þess eðlis að sé uppi einhver vafi um réttmæti eða lögmæti framkvæmdar kosninganna sé mikilvægt að skjót úrlausn fáist hjá þeim sem um ágreininginn fjalla.
Það var hins vegar mat manna að nefndarmenn þyrftu ekki að óttast það að gengi ágreiningur um framkvæmd og niðurstöður kosninga til beggja dómstiganna þyrfti það að framkalla langa bið, einfaldlega vegna þess að meginreglur laganna um meðferð einkamála um flýtimeðferð mála mundu eiga við í þessum tilvikum og þar af leiðandi ætti ágreiningur eins og þessi að geta runnið hratt og greiðlega í gegnum dómskerfið. Það er hins vegar þannig að eftir því sem dómstigin eru fleiri, og fleiri koma að því að kveða upp úr um ágreiningsefni eins og þessi, tekur málsmeðferðin auðvitað lengri tíma. Ég hefði fyrir mitt leyti talið nægjanlegt að niðurstöðum landskjörstjórnar skyldi vísa bara til Hæstaréttar og Hæstiréttur úrskurðaði eða ákvarðaði um niðurstöður kosninga og réttmæti þeirra athugasemda sem réttinum bærust, en ég felli mig svo sem alveg við þá leið sem hér er farin. Líkt og hv. þm. Birgir Ármannsson styð ég því það frumvarp sem hér er til umfjöllunar. Ég vildi hins vegar nota tækifærið til að gera grein fyrir þeim fyrirvara sem ég gerði þegar ég undirritaði nefndarálitið, en tel að niðurstaðan verði á endanum sú, komi upp alvarlegar athugasemdir um framkvæmd kosninga eða talningu eða aðra slíka þætti sem hafa verið til umfjöllunar í tengslum við kosningu til stjórnlagaþings, sé það alveg ljóst og leiði af almennum reglum auk efnisreglna þessa frumvarps að síðasta orðið um slíkan ágreining hafi alltaf Hæstiréttur Íslands.
Þetta eru þau sjónarmið sem ég vildi koma á framfæri um það frumvarp sem hér er til umfjöllunar og gera með þessum hætti grein fyrir þeim fyrirvara sem ég gerði við texta þess nefndarálits sem hér liggur frammi og gerð hefur verið grein fyrir.