framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingheimi fyrir að hafa veitt afbrigði fyrir því að ég kæmi þessari lagabreytingartillögu á dagskrá fundarins. Ég vil meina að um nokkurs konar mistök sé að ræða við vinnslu frumvarpsins. Þegar það er lagt fram er lögð til breyting við 13. gr. varðandi verulega ágalla á framkvæmd atkvæðagreiðslunnar og átti að bætast við 3. mgr. 13. gr. Svo þegar breytingartillaga um að 13. gr. orðist svo kemur inn í þingið á nefndaráliti fellur sú grein út í heilu lagi úr lögunum um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá stendur eftir, með leyfi forseta:
„Kærur um ólögmæti atkvæðagreiðslunnar, aðrar en refsikærur, skulu sendar landskjörstjórn til úrlausnar eigi síðar en tveimur dögum fyrir fund þann sem getið er um í 1. mgr. 10. gr.
Gallar á kosningu leiða ekki til ógildingar kosninga, nema ætla megi að þeir hafi haft áhrif á úrslit kosninganna.“
Þannig stendur 13. gr. nú eftir 2. umferð.
Ég er því komin með breytingartillögu við 13. gr. laganna eins og hún er í lögum um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna, að Hæstiréttur komi inn í lagatexta eins og í öllum kosningalögum eins og ég hef farið yfir.
Ég er sammála því að endurskoða þarf alla kosningalöggjöfina og samhæfa kosningar sem við förum í, kosningar til sveitarstjórna, forseta, Alþingis, þjóðaratkvæðagreiðslur og allar kosningar sem í boði eru svo að ein meginregla gildi fyrir allar kosningar. En á meðan ekki er gerð breyting í þá átt í þinginu verðum við að tryggja að þær kosningar sem við stöndum fyrir fari fram með þeim hætti sem lýðræðissamfélagi er samboðið. Við stöndum frammi fyrir því að Hæstiréttur ógilti kosningar til stjórnlagaþings og það megum við ekki láta koma fyrir aftur. Þess vegna verða allir varnaglar að vera til staðar í lögunum.
Frú forseti. Nú ætla ég að lesa upp þá breytingartillögu sem ég legg til, þrjár nýjar málsgreinar bætast við þá grein sem ég las upp áðan, það verða þá málsgreinar nr. 3, 4 og 5, og bætist við 5. gr., svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Kjósandi getur sent kæru um ólögmæti þjóðaratkvæðagreiðslu, aðra en refsikærur, til Hæstaréttar eigi síðar en sjö dögum frá því að ráðuneytið auglýsir úrslit atkvæðagreiðslunnar.
Landskjörstjórn veitir Hæstarétti umsögn um atkvæðagreiðsluna. Umsögn skal veitt óháð því hvort kæra hafi borist skv. 1. mgr.
Að fenginni umsögn landskjörstjórnar getur Hæstiréttur ákveðið að ógilda niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar ef verulegur ágalli hefur verið á framkvæmd hennar sem ætla má að hafi haft áhrif á niðurstöðu hennar.“
Svona liggur þetta fyrir. Ég hvet þingmenn til að láta nú pólitíkina lönd og leið. Þetta er tæknilegt atriði. Þetta snýst ekki um pólitík, þetta snýst ekki um stjórnmál, þetta snýst um framkvæmd kosninga í lýðræðisríki og þann rétt aðila til að kæra kosningar til æðsta dómstóls landsins ef hann telur að á sér sé brotið. Þarna er þetta komið inn í lagatexta, komið aftur inn í lögin um þjóðaratkvæðagreiðslur þar sem það var, ef þingheimur samþykkir þetta. Þá eru lögin um þjóðaratkvæðagreiðslur eins og önnur kosningalög í landinu með sérstakt ákvæði í lagatextanum sjálfum sem fjalla um kæruleiðir. Ég skora á þingmenn að segja já við þessu í atkvæðagreiðslu á eftir.