139. löggjafarþing — 93. fundur,  15. mars 2011.

skipun stjórnlagaráðs.

549. mál
[19:12]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allshn. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég ætla í þessu andsvari að hefja umræðuna á sama punkti og síðasti ræðumaður, hv. þm. Vigdís Hauksdóttir, lauk henni. Ég vil beina þeirri spurningu til hv. formanns allsherjarnefndar hvort hann telji að stjórnlagaráðið verði í einhverjum veigamiklum atriðum frábrugðið stjórnlagaþinginu sem átti að vera, og hvort ekki sé rétt hjá mér að ætlast sé til þess að sami hópur vinni að sama verkefni á svipuðum tíma við svipaðar starfsaðstæður og átti að vera samkvæmt stjórnlagaþingsfyrirkomulaginu. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður telji að fært sé að halda því fram að hér sé ekki um að ræða sama fyrirbrigðið með minni háttar útlitsbreytingum.

Í annan stað vil ég spyrja hv. þingmann hvort hann telji að það sé tilviljun að allir þeir háskólakennarar í lögfræði sem komu á fundi allsherjarnefndar í tengslum við málið túlkuðu þessa leið, skipun stjórnlagaráðs með þessum 25 fulltrúum, með þeim hætti að verið væri að fara á svig við niðurstöðu Hæstaréttar. Allir prófessorar í lögfræði sem komu fyrir nefndina túlkuðu þessa leið á þann hátt. Ég spyr hv. þingmann, af því að þetta eru fræðimenn sem eru sérstaklega þjálfaðir á þessu sviði, (Forseti hringir.) um túlkun laga og hafa það að atvinnu sinni að kenna öðrum þessa túlkun, hvort hann telji að það geti verið tilviljun að þeir komast allir að sömu niðurstöðu um þetta efni.