139. löggjafarþing — 93. fundur,  15. mars 2011.

skipun stjórnlagaráðs.

549. mál
[20:36]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allshn. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þessar hvað-ef-spurningar hv. þm. Róberts Marshalls eru dálítið skemmtilegar. Þetta er svona samkvæmisleikur og af því að nú er orðið kvöldsett ætla ég að taka þátt í þeim samkvæmisleik. [Hlátur í þingsal.] Ég mundi segja að ef ég t.d. væri Róbert Marshall, hv. alþingismaður, og ef ég væri þeirrar skoðunar að stjórnlagaþing ætti að eiga sér stað, rétt kjörið stjórnlagaþing kosið af þjóðinni, þá mundi ég vilja setjast niður núna, endurskrifa lögin um stjórnlagaþing, endurskoða kosningareglurnar, gera það almennilega og vera tilbúinn til að taka á mig þá gagnrýni sem fram mundi koma vegna annars vegar kostnaðar og hins vegar tímans sem það tæki. En ég er ekki Róbert Marshall, hv. alþingismaður, og ég er ekki stuðningsmaður stjórnlagaþings og ég mun ekki leggja til að þessi leið verði farin. En ef ég væri í sporum þeirra sem telja sig einlæga áhugamenn um stjórnlagaþing væri það einhver slík leið sem ég mundi vilja fara.