skipun stjórnlagaráðs.
Virðulegi forseti. Ég efast ekki um að stjórnlaganefndin hafi viðað að sér miklum gögnum og þekkingu á sviði stjórnskipunarmála. Sama má segja um stjórnarskrárnefndina sem starfaði hér undir forustu Jóns Kristjánssonar árin 2005 og 2007. Á þeirri þekkingu og þeirri vinnu hefði ég viljað byggja ásamt því sem fram kom á þjóðfundinum og að menn tækju afstöðu til þeirra hugmynda sem þarna kæmu fram.
Nú er auðvitað synd að hæstv. utanríkisráðherra skuli ekki vera hérna og geta tekið þátt í umræðunni með okkur, en mér finnst mikilvægt að við rifjum upp það sem kom fram á fundi allsherjarnefndar hjá Jóni Kristjánssyni, eins og ég sagði, höfuðpaur Framsóknarflokksins í stjórnlagaþingsmálum. Hann upplýsti það að þegar nefndin hafði starfað í tvö ár hafi einungis 26. gr. staðið út af borðinu. Það voru miklar deilur milli stærstu stjórnmálaflokkanna, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, um hvernig taka ætti á því máli og þeirri grein og hvort forseti Íslands ætti að hafa synjunarvald eins og því er fyrir komið í 26. gr. stjórnarskrárinnar.
Nú kunna sjónarmiðin að hafa breyst. Ég tel að viðhorf sérstaklega samfylkingarmanna og jafnvel hæstv. utanríkisráðherra, sem sat í stjórnarskrárnefndinni á þeim tíma, hafi tekið einhverjum stakkaskiptum sem leiðir til þess að þingmenn ættu hugsanlega, stjórnmálaflokkarnir, að geta komið sér saman um einhverjar breytingar á stjórnarskránni sem sátt væri um, eins og t.d. um auðlindaákvæðið, um 26. gr. og fleiri og fleiri þætti. Þetta finnst mér mikilvægt að komi fram, vegna þess að það hefur verið dynjandi áróður, bæði opinberlega og á þinginu, um að þinginu hafi mistekist að endurskoða stjórnarskrána. En þegar menn tala (Forseti hringir.) loksins við þá sem stýrðu þeirri vinnu sem hér fór fram árin 2005 og 2007 kemur í ljós að það stóð nánast ekkert út af borðinu, herra forseti. (Forseti hringir.) Það sem gerst hefur í framhaldinu eykur manni bjartsýni um að það náist (Forseti hringir.) viðunandi og þverpólitísk niðurstaða.