139. löggjafarþing — 93. fundur,  15. mars 2011.

göngubrú yfir Ölfusá.

109. mál
[23:28]
Horfa

Frsm. samgn. (Björn Valur Gíslason) (Vg):

Forseti. Ég flyt nefndarálit um tillögu til þingsályktunar um úttekt á gerð göngubrúar yfir Ölfusá við Selfoss.

Með þingsályktunartillögu þessari er lagt til að Alþingi feli innanríkisráðherra að láta meta kosti þess að gera göngubrú yfir Ölfusá við Selfoss og meta kostnað við slíka framkvæmd. Gert er ráð fyrir að slík úttekt á framkvæmdinni og kostnaðarmat liggi fyrir 1. mars 2011 eins og segir í tillögunni.

Umsagnaraðilar hafa ýmist fagnað tillögunni eða ekki gert athugasemdir við efni hennar. Þó hefur verið bent á að verulega knappur tími sé áætlaður til verksins. Í umsögn Vegagerðarinnar kemur m.a. fram að lagt hafi verið mat á möguleika þess að byggja léttari brú utan á núverandi brú en niðurstaða þess mats hafi verið að slíkt sé ekki skynsamlegt í ljósi burðarþols. Af þeim sökum telur Vegagerðin að horfa verði til annarra kosta. Þá bendir Vegagerðin á að unnið sé að undirbúningi að færslu hringvegarins norður eða austur fyrir þéttbýlið á Selfossi og smíði nýrrar brúar þar.

Nefndin telur að veruleg þörf sé á að gera úttekt á því hvaða kostir eru raunhæfir þegar kemur að brúun Ölfusár við Selfoss. Af umsögnum umsagnaraðila má sjá að þættir sem tengjast umferðaröryggi gangandi vegfarenda og samgöngum íbúa innan bæjar á Selfossi eru meðal grunnforsendna hvatningarorða þeirra.

Samgöngunefnd er samhljóða í áliti sínu varðandi þetta mál og leggur til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi breytingum:

Í stað dagsetningarinnar 1. mars 2011 komi 1. febrúar 2012.

Að þessu nefndaráliti standa samgöngunefndarmenn og hv. þingmenn Björn Valur Gíslason, Róbert Marshall, Árni Johnsen, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ásbjörn Óttarsson og Mörður Árnason. Hv. þm. Ólína Þorvarðardóttir og hv. þingmenn Sigmundur Ernir Rúnarsson og Guðmundur Steingrímsson voru fjarverandi við afgreiðslu þessa máls.