139. löggjafarþing — 94. fundur,  16. mars 2011.

húsnæðismál.

547. mál
[14:35]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Við þingmenn Hreyfingarinnar erum ekki hrifin af þeim leiðum sem farnar hafa verið til lausnar skuldamálum heimilanna og við sjáum ekki að í þeim felist neinar raunverulegar lausnir. Við viljum þó ekki standa gegn því að lántakendur hjá Íbúðalánasjóði njóti sömu réttinda og aðrir lántakendur og munum því sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.