landlæknir og Lýðheilsustöð.
Herra virðulegi forseti. Menn kann að undra að ég komi hingað og skipti mér af umræðu heilbrigðisnefndarmanna um stofnanir sem ég hef ekki mikið komið nálægt á þinginu og ég ætla ekki að gera það efnislega nema þá úr fjarlægð, en það lítur út fyrir að vera algerlega eðlilegt mál og ágætt að sameina þessar stofnanir. Kannski áttu þær aldrei að vera tvær og ég held að það hljóti að vera hægt að koma því þannig fyrir að öll verksvið þeirra komist vel af og að starfið eflist frekar en áður því að þetta er tilhneigingin, að reyna að koma starfsemi fyrir í einni stórri stofnun. Opinberar stofnanir okkar og raunar einkastofnanir líka líða fyrir að þar er ekki nóg af fólki og oft ekki aðstæður til að taka mjög mikið á.
Ég kom ekki hingað til ræða það frekar heldur til að spyrja formann hinnar háu heilbrigðisnefndar, hv. þm. Þuríði Backman, hvort ekki sé mögulegt að finna betri lausn á heiti hinnar nýju stofnunar en nú er uppi. Þá skal ég segja henni til vorkunnar og nefndinni að það heiti sem áður var lagt til í frumvarpinu, nefnilega Embætti landlæknis og lýðheilsu, hygg ég að það hafi verið, er ekki gott. Yfirleitt er það þannig að íslenskum sið að embætti einhvers er embætti einhvers tiltekins embættismanns; embætti landlæknis eða embætti forseta Íslands en ekki embætti málefnis eða samnafns þótt hugsanlega séu dæmi um það sem ég man a.m.k. ekki í svip, en það er það eðlilega. En ég held að það sé ekki góð leið að nema orðið embætti brott og ætlast til að þessi stofnun heiti Landlæknir – lýðheilsa, og bið nefndarmenn ósköp einfaldlega að velta því fyrir sér hvernig praxís muni vera á því. Hvað segir símastúlkan? Hvað verður forstjórinn kallaður? Það er reyndar landlæknir. En upplýsingafulltrúinn eða skrifstofustjórinn, skrifstofustjóri Landlæknis – lýðheilsu, fulltrúar Landlæknis – lýðheilsu? Það er ekki vel heppnað. Ég spyr hvort menn hafi leitað að fordæmum um það og hver þau þá séu í opinbera geiranum. Ég þekki þau annars staðar, t.d. í íþróttunum. Þar eru menn svo viðkvæmir að ef þarf að leggja saman knattspyrnulið eða keppnislið er stundum farin sú leið að setja bandstrik á milli, reyndar ekki þverstrik. Ég man, forseti, eftir því að í grennd við okkur, að vísu einkum í Reykjavíkurkjördæmi suður en þó líka norður, var félagið Grótta – KR sem lék handknattleik fyrir nokkrum árum. Það heppnaðist ekki mjög vel þannig að við skildum handboltann bara eftir í Gróttu og snerum okkur aftur að knattspyrnu og körfuknattleik í KR og leikum áfram undir því nafni.
Fyrir norðan held ég að hafi verið — var það ekki KA – Þór? Ég man eftir því að einhvers staðar í nágrenni við forseta þingsins, þann sem nú situr, var félagið Leiftur – Dalvík og fór það frekar illa, forseti. Þeir reyndu fyrir sér í 2. deildinni í fótboltanum en það fór ekki vel. Það getur vel verið að það hafi verið nafnið sem varð til þess (Gripið fram í.) að sú tilraun tókst ekki. Var hún þó mjög þörf því að til þess boruðum við göngin, forseti, á milli þessara tveggja byggðarlaga að knattspyrnufélögin gætu náð betri árangri en þau gerðu áður. Það er kannski ekki útséð með það en þau verða semsé að fá sér nýtt nafn til þess.
Í fullri alvöru hefur þetta ekki gengið mjög vel sem siður. Við þekkjum það líka úr viðskiptalífinu og fyrirtækjunum. Þar eru menn heldur að hverfa frá þessu af því að þau nöfn voru erfið í meðförum, t.d. Samvinnuferðir – Landsýn. Menn muna eftir því þeir sem eldri eru að hafa ferðast með Samvinnuferðum – Landsýn og þá þurfti að beygja það allt saman: Til Samvinnuferða – Landsýnar. Fyrir nokkrum árum var ég einn af viðskiptavinum Sjóvár – Almennra. Sú samsetning gekk ekki og þetta heppnast yfirleitt ekki vel. Ég held að núna séu fyrirtæki yfirleitt að reyna að hætta þessu og velja sér nýtt nafn. Má að vísu deila um hversu vel heppnuð þau eru sum, samanber Arion banka og önnur slík fyrirbrigði, en þessi siður er yfirleitt aflagður.
Það sem gerst hefur undanfarin ár í sameiningarmálum — nú hef ég ekki haft aðstöðu til að kynna mér það mjög vendilega eða safna saman gögnum um það en ég skal gera það síðar ef óskað er eftir og flytja um það nokkurt erindi — er að menn hafa verið að reyna að finna nöfn sem ganga og hafa yfir að búa hinni sögulegu hefð þótt mönnum þyki í fyrstu að þau nái ekki 100% yfir þá starfsemi sem í meðförum er. Þá er það oft svo með þær stofnanir sem lengi lifa, þó að þær skipti ekki um nafn og sömu lögin gildi um þær, að starf þeirra þróast þannig að upphafsnafn þeirra er kannski komið svolítið langt frá því sem eitt sinn var þegar Hannes Hafstein og Skúli Thoroddsen stofnuðu til þeirra í byrjun síðustu aldar. Ég minni t.d. á þrjú nýleg dæmi um sameinaðar stofnanir — reyndar hefur sameining í einni þeirra ekki gengið enn. Það var stofnun sem ég kom aðeins nálægt í menntamálanefnd á sínum tíma þegar teknar voru fimm stofnanir á sviði íslenskra fræða og skeytt saman í eina. Þetta veit auðvitað hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir af því að hún er svo vel menntuð. Voru menn að vandræðast um hvað sameinuð stofnun ætti að heita. Stofnun íslenskra fræða er hálfhjákátlegt, svolítið svipað og Embætti lýðheilsu. Að lokum var tekinn sá kostur sem við stóðum fyrir í nefndinni, sem ég hygg að hafi verið nokkuð góður, í samráði við hina bestu menn, að taka nafn þeirrar sem mest fór fyrir og frægust var um löndin, nefnilega Stofnunar Árna Magnússonar, og nota það ásamt svolitlum hala. — Hér gengur þingflokksformaður minn, hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir, hjá og lítur á mig aðdáunaraugum með þakkarsvip og ég kann svo sannarlega að meta það að fá slíkan stuðning í ræðustól eins og nú háttar til.
Önnur stofnun sem einmitt hv. þm. Þórunn Sveinbjarnardóttir stóð fyrir að sameina þegar hún var umhverfisráðherra ásamt hinu háa Alþingi fyrir ekki löngu — hún stóð sig svo vel sem umhverfisráðherra að það jafnast nánast á við hæstv. núverandi umhverfisráðherra Svandísi Svavarsdóttur, þannig að það sé sagt, og hefði gengið enn þá betur ef hún hefði ekki verið í stjórn með ákaflega vondum flokki sem við höfum haldið utan stjórnar í nokkur ár og gerum áfram. Kemur nú mæðusvipur á fyrri viðhlæjendur mína í ræðustól. (Gripið fram í.) Nú ættum við, forseti, kannski að hafa einnar mínútu þögn til að minnast afdrifa þess flokks og afreka hans í landinu eftir 18 ára valdaferil. Þetta var að vísu svolítill útúrdúr og ég vona að það spilli ekki máli mínu (Gripið fram í.) að öðru leyti. Ég veit a.m.k. að hv. formaður heilbrigðisnefndar lætur þetta ekki spilla fyrir málstað mínum enda er hún í ákaflega góðum flokki sem er nú í ríkisstjórn með enn þá betri flokki en hún er í.
Dæmið með hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur var þegar Veðurstofa Íslands sameinaðist Vatnamælingum Orkustofnunar. Hvað átti það að heita? Veður- og vatnastofan, eða hvað í ósköpunum átti hér að ganga á? Niðurstaðan varð sú að hinn góði ráðherra á þeim tíma hafði samráð við hina bestu menn, eins og alltaf er gott að hafa, og fann þá út að best væri að Veðurstofa Íslands héldi áfram að heita sínu gamla nafni. Vatnamælingarnar runnu síðan inn í það og þótt eðlilega kæmi upp kurr hjá starfsmönnum Vatnamælinga er það samt niðurstaðan að Veðurstofa Íslands starfar enn og á því verksviði sem endurspeglast þar. Ég held að það sé ekki eftir nokkur óánægja með það sem eftir stendur í þeirri stofnun.
Allt gerðist þetta hér í salnum, forseti, og þriðja dæmið á uppruna sinn einmitt hjá forseta þeim sem nú situr í ræðustóli, hv. þm. Kristjáni Lúðvíki Möller og fyrrverandi hæstv. samgönguráðherra, sem lagði fyrstur fram frumvarp það sem nú er í vinnslu í hinni háu samgöngunefnd um annars vegar Farsýsluna og hins vegar Vegagerðina. Hjá Vegagerðinni, sem annað frumvarpið er um, stendur til að sameina nokkrar stofnanir eða nokkra hluta af stofnunum undir því nafni og verður nafnið auðvitað líka vandi því að það eru ekki bara vegir, akbrautir eða reiðgötur í þeirri klassísku merkingu sem þarna er um að ræða, heldur farvegir á landi, láði og lofti, en hv. þm. Kristján Möller, ágætur forseti hér í salnum, lagði til að það héti Vegagerðin. Var þar með því forna nafni viðhaldið að sjálfsögðu í samráði við hina bestu menn eins og hlýðir að gera við slík tækifæri.
Ég rek þessi dæmi bara til kurteislegrar ábendingar fyrir formann hinnar háu heilbrigðisnefndar, hv. þm. Þuríði Backman, og hennar góðu samstarfsmenn í nefndinni sem hér hafa ást við ákaflega hlýlega. Það er eftirtektarvert og ánægjulegt að heyra hversu góður samstarfsandi er í þeirri nefnd. Ég legg til að nefndin ræði þetta milli 2. umr. og 3. umr. og fái kannski ráðgjöf hjá sérstakri stofnun ef mín nægir ekki, eða a.m.k. undirstofnun sem við hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir þekkjum ágætlega og hét Íslensk málstöð áður. Ég man ekki hvað hún heitir núna en hún gefur ráð af þessu tagi og mundi vera fús til að láta hinni háu heilbrigðisnefnd hins háa Alþingis í té ráðgjöf vegna þessa máls og ég legg til að heilbrigðisnefnd sækist eftir henni. Ég geri ráð fyrir að það gangi mjög greiðlega.