139. löggjafarþing — 94. fundur,  16. mars 2011.

landlæknir og Lýðheilsustöð.

190. mál
[17:32]
Horfa

Mörður Árnason (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég er ekki ánægður með þetta svar eins og vænta mátti þótt ég virði vilja nefndarinnar til að komast að samkomulagi og ná sáttum. Með sum mál borgar sig ekki að fara of víða. Ég ætla ekki að hafa það upp úr fornsögunum að því verr gefist heimskra manna ráð sem fleiri koma saman en hugur minn hvarflaði þó aðeins í þá átt.

Ég skora á nefndina að spyrjast fyrir hjá smekkmönnum á þeirri stofnun sem ég nefndi áðan, Stofnun Árna Magnússon í íslenskum fræðum. Ég man ekki hvað sviðið heitir en þar er sérstakt svið sem annast málrækt, hugsar upp nýyrði eða fylgist með nýyrðastarfi og getur gefið ráð í þeim efnum.

Ef ég yrði spurður mundi ég taka út seinna nafnið og halda mig við embætti landlæknis, það er eldra og við þekkjum það þó að eðlið sé ekki hið sama og þó að starfsmenn á hinni stofnuninni kunni að verða óánægðir þá stendur það ekki yfir nema í nokkrar vikur eða mánuði að því tilskildu að allt sé í góðu lagi, að ekki ýfist upp eitthvað annað í því sambandi og þá er það sem sé rótin sem eitthvað er athugavert við en ekki blómið sem upp af henni vex.