139. löggjafarþing — 95. fundur,  17. mars 2011.

tilhögun þingfundar og tilkynning um dagskrá.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Atkvæðagreiðslur verða um kl. 11 í dag.

Forseti vill geta þess að í dag fer fram utandagskrárumræða um hernað Gaddafís gegn líbísku þjóðinni og viðbrögð alþjóðasamfélagsins. Málshefjandi er hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson og til andsvara verður hæstv. utanríkisráðherra Össur Skarphéðinsson. Umræðan fer fram upp úr kl. 11, að loknum atkvæðagreiðslum.

Forseti gerir síðan ráð fyrir að atkvæðagreiðslur verði aftur að lokinni utandagskrárumræðunni.