hernaður Gaddafís gegn líbísku þjóðinni og viðbrögð alþjóðasamfélagsins.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir að taka upp þetta mál. Við eigum að ræða mál eins og þessi sem varða samvisku heimsins. Ég vil líka segja alveg skýrt í upphafi máls míns að ég er sammála hv. þingmanni um að alþjóðasamfélagið hefur brugðist almenningi í Líbíu.
Ég vil líka rifja upp að þegar þetta mál var rætt hér utan dagskrár fyrir sléttum hálfum mánuði var ég í minni hluta þeirra þingmanna sem töluðu, ásamt tveimur öðrum þingmönnum, að því marki að ég vildi ganga lengra en þá voru uppi ráðagerðir um af hálfu alþjóðasamfélagsins.
Staðan er nákvæmlega eins og hv. þingmaður lýsti henni. Eftir að í upphafi virtist sem almenningur og frelsisunnandi alþýða í Líbíu mundi ná undirtökum og hafði tekið á sitt vald stóran hluta Líbíu hefur einræðisherrann hægt en bítandi mulið undir sig landið á nýjan leik. Við sjáum það blasa við núna á þessum degi að það er mjög líklegt að síðasta vígið, að vísu ein stærsta borg í Líbíu, sem er á valdi uppreisnarmanna, Bengasí, muni líka falla. Við sjáum það undirstrikað af því að Rauði krossinn hefur fyrirskipað starfsmönnum sínum að fara úr borginni og sonur Gaddafís og sá sem á að taka við af honum hefur lýst því sigri hrósandi yfir að á næstu 48 tímum muni Gaddafí og ógnarstjórn hans hafa náð tökum á landinu aftur.
Það er líka hárrétt hjá hv. þingmanni að Gaddafí gerir það með vopnum sem hann á sínum tíma fékk keypt frá ýmsum viðskiptaveldum sínum. Það kann að vera að ég hafi sagt of mikið hér um daginn og hv. þingmaður fengið þær upplýsingar frá mér að þetta væru vopn frá vesturveldunum. Ég hef skoðað þær skýrslur sem liggja fyrir um þetta mál og þá kemur í ljós að þau vopn sem Gaddafí býr yfir eru gömul, lúin og úrelt. Mest af þeim er keypt áður en viðskiptabannið var sett á Líbíu 1996. Eftir að því var aflétt 2006 blasir við að hann hefur ekki getað endurnýjað t.d. flugflota sinn og vopnabúnað nema að mjög óverulegu leyti. Hann hefur keypt brynvarðar bifreiðar, þær hefur hann ekki keypt frá vesturveldunum heldur frá arabaríkjum, þannig að til þessa er kannski ekki hægt að ásaka vesturveldin fyrir að hafa látið vopn í staðinn fyrir olíu.
Það sem mér finnst kannski sorglegast í þessu öllu er að það hefði verið svo hægur leikur að grípa til aðgerða. Þó að Líbía sé stórt land er þjóðin lítil og þó að herinn sé hlutfallslega stór miðað við þjóðina er hann illa vopnum búinn. Það hefði verið auðvelt (Gripið fram í.) að ráða niðurlögum þeirra herja og málaliða sem Gaddafí beitir núna.
Hvað er það sem alþjóðasamfélagið vill gera? Það vakti furðu mína að hv. þingmaður nefndi ekki þá alþjóðastofnun sem er í mestum færum til að fara þarna inn og skakka leikinn, þ.e. Atlantshafsbandalagið. Það er, utan Bandaríkjanna, eina stofnunin sem getur gert það. Það hefur setið á fundum núna og það hefur sett fram þrjú skilyrði fyrir þeim áætlunum sem bandalagið er með til þess að skakka leikinn. Það er í fyrsta lagi að það sé brýn þörf. Hún liggur fyrir, þörfin er brýn. Í öðru lagi verður að vera lögmæti á bak við þá aðgerð. Það felur í sér að það þarf að liggja fyrir samþykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Í þriðja lagi þurfa arabaþjóðirnar að vera hlynntar þessu. Sú forsenda er uppfyllt. Arababandalagið hefur lýst yfir stuðningi við að loftferðabanni yfir Líbíu verði haldið. Öryggisráðið hefur hins vegar ekki komið sér saman um að grípa til þessara aðgerða, þ.e. í öryggisráðinu ræða menn um að grípa til loftferðabanns. Bandaríkin hafa viljað ganga lengra að því marki að þau hafa líka viljað beita aðgerðum á jörðu niðri ef þörf er á því til þess að koma fram mannúðaraðstoð og koma í veg yfir fjöldamorð á borgurum. Ég vil segja það fyrir mína parta að ég styð þá stefnu. En Atlantshafsbandalagið mun að öllum líkindum ekki fallast á það fremur en öryggisráðið. Það vil ég segja hér sem mína skoðun.
Það sem Íslendingar hafa gert er að taka sterkt til orða. Ég tók mjög mikið upp í mig um framferði Gaddafís og kallaði atburðina stríðsglæpi. Undir það var tekið síðan af fastafulltrúanum sem sagði sig frá Líbíustjórn í New York. Ísland hefur lagt hlutfallslega meira af mörkum en aðrar þjóðir, við höfum lagt 12 millj. kr. til matvælaaðstoðar og flóttamannahjálpar, sem er nýtt, til að bæta stöðu almennings á þessum átakasvæðum. Við höfum sömuleiðis (Forseti hringir.) verið í fararbroddi þeirra þjóða sem hafa krafist aðgerða og lagt fram tillögur um það á alþjóðavettvangi.