139. löggjafarþing — 95. fundur,  17. mars 2011.

hernaður Gaddafís gegn líbísku þjóðinni og viðbrögð alþjóðasamfélagsins.

[12:14]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg):

Frú forseti. Ég tek undir áhyggjur þingmanna af ástandinu í Líbíu og einnig það að við megum ekki gleyma ábyrgð Vesturlanda á hervæðingu Gaddafís. Frá því að hann var tekinn aftur inn í vinaklúbb Vesturlandanna og vopnasölubanninu aflétt í september 2003 hafa Rússar, Frakkar, Ítalir og Bretar keppst við að fá að selja honum sem mest af bæði þungavopnum og öðrum hergögnum í skiptum fyrir olíu og gas. En þeir hafa líka tekið við ómældu fé úr hendi hans og sonar hans til einstakra mála eins og dæmið um London School of Economics sýnir.

Ég bind miklar vonir við það, frú forseti, að öryggisráðið sem situr nú á fundi nái í dag langþráðri niðurstöðu um frekari aðgerðir til að verja líbísku þjóðina gegn hernaði Gaddafís. Vopnasölubannið og aðrar þær aðgerðir sem voru ákveðnar í febrúar sl. hafa því miður ekki haft mikið að segja því að þvert á vonir um að Gaddafí mundi víkja fyrir lýðræðisbylgjunni hefur hann lagt undir sig hvert vígið á fætur öðru og nú bíða menn þess að Bengasí falli og í kjölfarið óttast menn, með réttu, víðtækar hefndaraðgerðir og jafnvel þjóðarmorð.

Því má það ekki dragast lengur, ekki deginum lengur, að það verði látið á það reyna í endanlegri atkvæðagreiðslu í öryggisráðinu hvaða þjóðir það eru sem þar munu beita neitunarvaldi gagnvart því að koma líbísku þjóðinni til hjálpar. Það er mín skoðun að á það verði að reyna fyrst því að ég tel ekki að Bandaríkjamenn einir eða með viljugum þjóðum eða NATO sem slíkt eigi að fara inn í annað arabaríki án samþykkis og ákvörðunar Sameinuðu þjóðanna.

Ekkert ríki á að geta haft neitunarvald þegar þjóðarmorð er í uppsiglingu. Ég vil í þessu sambandi, frú forseti, nefna að utanríkisráðherra Dana hefur bent á samþykkt Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2005, um skylduna til að verja og vernda, Responsibility to Protect, sem opnar óhefðbundna leið fyrir Sameinuðu þjóðirnar til að bregðast við ef öryggisráðið er blokkerað með þessum hætti og stefnir í þjóðarmorð. Þá (Forseti hringir.) leið mundi ég styðja, það er leið til þess að hindra annað Rúanda eða annað Kósóvó (Forseti hringir.) ef þjóðir heims ætla að beita neitunarvaldi í öryggisráðinu.