139. löggjafarþing — 95. fundur,  17. mars 2011.

norrænt samstarf 2010.

595. mál
[13:04]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni og formanni Íslandsdeildar Norðurlandaráðs fyrir þessa yfirferð og jafnframt ég þakka honum fyrir skelegga forustu sem forseti ráðsins á síðasta starfsári þess. Ég tek auk þess undir þær þakkir sem hann flutti til starfsmanna Alþingis og forseta við undirbúning að Norðurlandaráðsþinginu síðastliðið haust.

Eins og fram kemur í skýrslunni hefur forseti Norðurlandaráðs, sem var hv. þm. Helgi Hjörvar á síðasta ári, mikilvægu hlutverki að gegna varðandi stefnumótun almennt. Hér kemur fram að hann hafi í alþjóðastarfi sínu lagt meiri áherslu á Evrópu, Vestur-Norðurlönd og norðurskaut en fyrirrennarar hans á síðustu árum. Sjálf fagna ég slíkri áherslubreytingu í norrænu samstarfi. Ég hlýt að viðurkenna að ég vænti mér talsverðs af íslenskri forustu í þessum efnum á þann veg að áherslan á austurveg, yfir til baltnesku landanna og Austur-Evrópu, jafnist aðeins á milli þess svæðis annars vegar og svo norðurslóða, vestur/norður-Norðurlandanna, þ.e. Norður-Noregs, Færeyja, Íslands og Grænlands og jafnvel yfir til Kanada.

Ég vil spyrja hv. þingmann: Hvernig telur hann að til hafi tekist með þeirri áherslubreytingu sem nefnd er í skýrslunni? Hvaða ávinningur telur hv. þingmaður að geti verið af slíkri áherslubreytingu í norrænu samstarfi, ekki bara fyrir Ísland heldur fyrir Norðurlöndin sem heild?