139. löggjafarþing — 97. fundur,  22. mars 2011.

breytingar í grunn- og leikskólum Reykjavíkur.

[14:22]
Horfa

Sigurður Kári Kristjánsson (S):

Virðulegi forseti. Ég verð að segja að ég varð fyrir vonbrigðum með þessi svör vegna þess að ég óskaði eftir því að fá að heyra álit hæstv. menntamálaráðherra á þeim hugmyndum sem hafa valdið svona mikilli ólgu og reiði í Reykjavík meðal nemenda, kennara og starfsmanna menntastofnananna og ekki síst meðal foreldra. Ég fékk engin svör um álit hæstv. ráðherra á þessum fyrirhuguðu breytingum.

Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðherra að auðvitað hafa sveitarfélögin mikið um það að segja hvernig þau haga sínum málum í skólunum en þeim ber hins vegar, og það segir einfaldlega í lögum um grunnskóla, að haga störfum skólanna í sem fyllstu samræmi við stöðu og þarfir nemenda. Það er ekki í samræmi við þarfir lítilla krakka að þurfa að þvælast um á milli einstakra hverfa (Forseti hringir.) til þess að komast í skólann sinn þannig (Forseti hringir.) að ég óska nú eftir skýrari svörum um (Forseti hringir.) áform hæstv. ráðherra við að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin og skoðun (Forseti hringir.) hennar á þeim hugmyndum sem fram eru komnar.