breytingar í grunn- og leikskólum Reykjavíkur.
Virðulegi forseti. Ég tek það fram að við munum skila okkar umsögn í þessari viku, þ.e. ráðuneytið, og ég geri það fyrir hönd þess, getum við sagt, sem mennta- og menningarmálaráðherra. Þar leggjum við faglegt mat á tillögurnar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Það liggur fyrir að niðurskurður hjá Reykjavíkurborg á menntasviði, sem rekur leik- og grunnskóla, er u.þ.b. 3%. Ég get haft þá skoðun, og hef hana, að það sé náttúrlega æskilegast að skera sem minnst niður í menntakerfi, en við verðum líka að átta okkur á því að staða sveitarfélaganna er þröng rétt eins og ríkisins þar sem hefur til að mynda verið skorið niður í framhaldsskólum á þessu ári um 5% svo ég nefni dæmi til samanburðar.
Meðal þess sem við skoðum út frá faglegum sjónarmiðum eru að sjálfsögðu ferðir barna milli hverfa, ólíkar stefnur í til að mynda leikskólum sem rætt er um að sameina og hvernig sjónarmiða ólíkra skólastiga og frístundaheimila er gætt í þessari vinnu. Þetta mun koma fram í okkar umsögn en hún byggist fyrst og fremst á faglegum sjónarmiðum. (Forseti hringir.)
Svo hef ég þá pólitísku skoðun að hlífa eigi sem mest menntamálum og málefnum barna og ungmenna þegar almennt er hugað að (Forseti hringir.) hagræði.