139. löggjafarþing — 97. fundur,  22. mars 2011.

álver við Bakka.

[14:31]
Horfa

iðnaðarráðherra (Katrín Júlíusdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Gæfa þessa verkefnis er núna og það hve hratt hlutirnir þurfa að ganga er vegna þess að verið að reka málið á viðskiptalegum forsendum, þ.e. í gangi eru samningar á viðskiptalegum forsendum milli orkusalans og hugsanlegra orkukaupenda. Stjórnmálamenn hér á Alþingi hafa ekki beint verið með fingurna í því, þ.e. í samningagerðinni um kaupin á orkunni og það er gæfa verkefnisins. Ég held að við eigum að halda því í þeim farvegi og senn mun draga til tíðinda í þeim efnum.

Virðulegi forseti. Nú er staðan þannig, eins og kom líka fram í kvöldfréttum á föstudaginn, að Landsvirkjun er svo sannarlega að spýta í lófana hvað þetta svæði varðar og segir að þetta sé þeirra næsta stóra uppbyggingarsvæði. Hún sýnir það í verki með því að tveggja ára stoppi í rannsóknum á svæðinu, orkuöflunarsvæðinu, lýkur núna í sumar þegar menn ætla að fara að bora þar rannsóknarholu og gera fleiri (Forseti hringir.) rannsóknir. Verkefnið er á gríðarlega góðu róli, við erum með Naust-hópinn svokallaða þar sem öll sveitarfélögin (Forseti hringir.) koma að og á bak við það verkefni er gríðarlega stór hópur heimamanna. Ég tel að það hafi gefist langbest og sé verkefninu (Forseti hringir.) til heilla.