139. löggjafarþing — 97. fundur,  22. mars 2011.

staða ríkisstjórnarinnar.

[14:34]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Hv. þingmaður hefur kannski ekki verið kominn í salinn þegar ég fékk þessa spurningu hér áðan frá öðrum hv. þingmanni. Ég hef litlu við það að bæta sem ég sagði þar og hef almennt sagt um þetta mál, ég held að við sem höfum tjáð okkur um þetta höfum hvorki reynt að gera lítið né mikið úr þessum atburði, við höfum einfaldlega horfst í augu við hann eins og hann er. Við höfum sagt að það séu okkur vonbrigði að félagar okkar skuli taka þessa ákvörðun. En við ætlum að halda áfram og ekki láta þetta hafa nein áhrif á það að við tökumst á við þau verkefni sem við höfum tekið að okkur og erum með í höndunum og eru ærin og kalla á alla okkar orku. Síðan mega aðrir reyna að leika sér í pólitískum loftfimleikum og túlkunum eins og þeir vilja fyrir mér, en í hnotskurn snýr málið svona við okkur og þeim sem hér talar.