139. löggjafarþing — 97. fundur,  22. mars 2011.

aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.

496. mál
[16:05]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er ágætt að hér sé farið að ræða íslenska ákvæðið því að ég hef verið talskona þess að íslenska ákvæðinu yrði haldið hér inni. Því miður hefur ekki verið haldið um þá splunkunýju auðlind sem kom til okkar með íslenska ákvæðinu, hið svokallaða 14/CP.7 ákvæði um undanþágu okkar í losunarkvótaformi, en með þeirri undanþágu gátum við staðfest Kyoto-bókunina.

Við getum líkt þessu við það að nú er makríllinn skyndilega ný auðlind við Ísland. Hann siglir inn í landhelgina okkar og er þar, okkur til hagsbóta sem þjóð. Við sköpum mjög mikil útflutningsverðmæti með því. Svipað má segja um íslenska ákvæðið. Það kom til okkar sem ný auðlind, en stjórnvöld undir forustu Vinstri grænna í umhverfisráðuneyti nú um stundir og Samfylkingarinnar í þeirri ríkisstjórn sem nú er hér hafa afsalað sér þessu vegna þess að þeim liggur svo á að komast inn í losunarkerfi Evrópusambandsins. Við þetta hef ég alltaf verið mjög ósátt og hef bent á að árið 2007 uppreiknaði ég í íslenskum krónum hvað íslenska ákvæðið um þessar losunarheimildir væri raunverulega mikil verðmæti og þá voru það 15 milljarðar. Þessu er hent út um gluggann fyrir þetta evrópska kerfi. Það kom fram í máli hæstv. utanríkisráðherra áðan að þetta væri alls ekki neitt tengt því að hér væri verið að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Hvað heldur þingmaðurinn um það, er þetta mál ekki tengt þeirri umsókn? Mér þætti mjög vænt um að heyra hvað hv. þm. Kristján Þór Júlíusson segir um það og það hvers vegna verið er að henda þessum gríðarlegu hagsmunum sem við þó fengum fyrir þá litlu hagsmuni að ganga þarna inn, sér í lagi þar sem við erum einungis með græna, hreina orku til orkubúskapar.