aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.
Virðulegi forseti. Ég var ekki alveg tilbúin vegna þess að ég hélt að hæstv. umhverfisráðherra mundi svara þeim spurningum sem lagðar voru fyrir hana í þessari ræðu. Þingmaðurinn nefndi í ræðu sinni svo einstaklega fallega umhyggju fyrir börnum okkar og afkomendum og þá sagði ég líka: Þetta er svipað mál og með Icesave, við í Framsóknarflokknum viljum a.m.k. ekki að börnin okkar borgi Icesave, og þá skilur hann kannski umhyggjuna fyrir þessari áætlun vegna mengunar.
Mig langar til að spyrja þingmanninn hvort hann trúi virkilega innst inni því sem hann fór yfir í ræðu sinni um markmiðin um samgöngurnar sem hann fór svo vel yfir. Hér var talað um kolefnisgjald. Það var talað um breytt kerfi skatta og gjalda á bíla og eldsneyti. Trúir þingmaðurinn því virkilega að þetta sé komið til vegna þessarar áætlunar?
Það var hæstv. fjármálaráðherra sem setti kerfið hér á til að auka tekjur fyrir ríkissjóð. Eins og við vitum gengur honum hálfilla að reka ríkissjóð. Það er ekki af ást á lofthjúpnum sem þetta er sett á. Það kom margoft fram í ræðu hjá fjármálaráðherra að hér þyrfti að auka tekjur ríkissjóðs þó að þetta hafi svo slæðst inn í þessa skýrslu. Svona er nú oft verið að slá ryki í augun á fólki. Þetta var fyrri spurningin.
Hin spurningin varðar að þingmaðurinn telur núna það mikilvægasta sem við stöndum frammi fyrir vera það að kasta út íslenska ákvæðinu og gangast evrópska kerfinu á hönd, eins og stendur hér. Hvað finnst þingmanninum t.d. um að stór ríki eins og Bandaríkin séu ekki aðilar að þessu kerfi? Hvað finnst þingmanninum um að Kína og Indland hafi hunsað það að ganga inn í Kyoto-bókunina en við hér uppi á Íslandi, á þessu fallega landi, framleiðum græna orku og (Forseti hringir.) afhendum hana hér og leggjum til með þessu að við göngum í gegnum mikinn niðurskurð og sparnað á þeim heimildum sem við þó höfum? Þarf nú ekki atvinnulífið á þeim að halda?