139. löggjafarþing — 97. fundur,  22. mars 2011.

aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.

496. mál
[17:41]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. umhverfisráðherra fyrir ræðu hennar. Það er bara eitt sem mig langar að vita. Hvers vegna ganga loftslagsmálin ekki betur á heimsvísu úr því að þjóðir heims eru fullar lotningar og bera svo mikla virðingu fyrir því einstaka verkefni, eins og ráðherrann fór yfir? Fyrir rest snýst þetta nefnilega alltaf um peninga. Þetta snýst um að þjóðir heims geti átt viðskipti með þennan svokallaða loftslagskvóta og geti veðsett hann og lagt hann fyrir til að fá einhverja greiðslu eða annað fyrir því að, eins og ég fór einmitt yfir áðan, þetta snýst um að færa fjármagn á milli vesturs og austurs og hjálpa svokölluðum þróuðum ríkjum með því að fara þangað, byggja verksmiðjur og fá svo loftslagskvóta í staðinn.

Úr því að svona mikil virðing er borin fyrir þessu verkefni í heiminum, af hverju gengur það ekki hraðar? Hvers vegna var ekki komist að samkomulagi á Kaupmannahafnarráðstefnunni sem allir bundu svo miklar vonir við og leiðtogar heims komu á í einkaflugvélum sínum og menguðu andrúmsloftið fyrir okkur hinum? Hvers vegna gengur málið svona hægt að mati ráðherra?