skipun stjórnlagaráðs.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur fyrir fyrirspurnina. Hún bendir á eitt af allnokkrum dæmum sem dregin hafa verið fram um galla á framkvæmd kosningarinnar og ég held að við verðum að játa að þar var ýmislegt sem betur hefði mátt fara. Ég hef ekki haft aðstöðu til að fara í gegnum gögnin sem hv. þingmaður vitnar til í máli sínu en tel að við hefðum átt, í ljósi þess hve mikið var undir í þessu máli, að endurtaka leikinn. Að taka til við endurskoðun stjórnarskrárinnar er ekki mjög hversdagslegt mál og kannski er mikilvægt í slíku máli umfram öll önnur að vanda sig í hverju skrefi. Þess vegna hefði ég talið að við hefðum átt að draga þann lærdóm af niðurstöðu Hæstaréttar að við yrðum að laga þá ágalla sem voru á framkvæmdinni og kosta kapps um að endurtaka leikinn með þeim hætti sem fullur sómi væri að. Það hefði ég talið eðlilegt en ég hef, eins og ég rakti í ræðu minni, skilning á því að eftir því sem tíminn líður verður sú leið sem eðlilegust hefði verið, að grípa til uppkosninga, sífellt vandasamari. Menn hefðu þurft að taka mjög skjóta ákvörðun um leið og úrskurður Hæstaréttar lá fyrir og fara í nýja kosningu. Það var ekki gert og við stöndum frammi fyrir þessari leið. Hún er misráðin að mínu mati en ég er hins vegar mjög mikill stuðningsmaður þess að sérvaldir, sérstakir fulltrúar þjóðarinnar takist á hendur þetta mikilvæga verkefni og ég óska þeim alls hins besta í því.