skipun stjórnlagaráðs.
Frú forseti. Ég held að eðlislæg óbeit hv. þingmanns á Sjálfstæðisflokknum sé nú að koma fram með einhverjum hætti því að það er sama hvað sett er fram hér það er eins og hann hlusti ekki. Og það er eins og hann hafi ekki haft hljóðið á þegar hann horfði á umræðurnar hér fyrir tveimur árum, þegar við ætluðum að breyta stjórnarskránni, því að það kom margoft fram af hálfu okkar Sjálfstæðismanna að við viljum breyta stjórnarskránni. Það kom líka fram varðandi stjórnlagaþingið að við erum á móti þeirri aðferð af því við viljum fara eftir núgildandi stjórnarskrá. Það er alveg á hreinu að við viljum breyta stjórnarskránni og við höfum t.d. gert það í samvinnu við Framsóknarflokkinn, við breyttum stjórnarskránni 1995, við breyttum stjórnarskránni verulega 1999. Þáverandi formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins lögðu meðal annars fram sameiginlega breytingartillögu á mjög umdeildu ákvæði í stjórnarskránni varðandi auðlindaákvæðið. Þannig að ekki er hægt að brigsla okkur sjálfstæðismönnum um það að vilja ekki breyta (Forseti hringir.) stjórnarskránni.
Ég vil hins vegar spyrja hv. þingmann (Forseti hringir.) um orð Sigurðar Líndals prófessors af því að honum verður (Forseti hringir.) tíðrætt um (Forseti hringir.) að við séum (Forseti hringir.) (Forseti hringir.) að fara (Forseti hringir.) á svig við dómsvaldið. (Forseti hringir.) Hvað segir hv. þingmaður (Forseti hringir.) um orð Sigurðar Líndals (Forseti hringir.) í títtnefndri grein (Forseti hringir.) sem verið hefur (Forseti hringir.) til umræðu?