139. löggjafarþing — 97. fundur,  22. mars 2011.

skipun stjórnlagaráðs.

549. mál
[20:12]
Horfa

Sigurður Kári Kristjánsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er ósammála því sem fram kom í máli hv. þingmanns um að með tillögunni séu flytjendur hennar að virða niðurstöðu Hæstaréttar um ógildingu kosningarinnar. Ég tel þvert á móti að þeir séu að vanvirða hana, þeir hafi niðurstöðu æðsta dómstólsins að engu, í það minnsta fari þeir á svig við hana.

Ég felli mig ekki við þá röksemd sem fram kom í ræðu hv. þingmanns að það feli í sér virðingu eða viðurkenningu á niðurstöðu réttarins að þeir 25 sem hlutskarpastir voru í kosningunni fái ekki kjörbréf. Hv. þingmaður gleymir því að í tillögunni felst að þessir 25 einstaklingar verði skipaðir í stjórnlagaráð. Þeir fá sama hlutverk og þeim var ætlað á stjórnlagaþingi, þeim er ætlað að starfa á sama stað og lagt var upp með, hljóta sömu laun og sinna sama verkefni. Það er ekkert ólíkt með þessu stjórnlagaráði og stjórnlagaþinginu annað en nafnið á samkomunni og því hver skipar.

Látum liggja á milli hluta hvað mér finnst um þetta. Bætum því við að undir þessi sjónarmið hafa Sigurður Líndal lagaprófessor, Róbert Spanó lagaprófessor og Ragnhildur Helgadóttir lagaprófessor tekið. Eiríkur Tómasson, einnig lagaprófessor, lýsti því yfir að þetta væri sú leið sem menn ættu síst að velja. Þegar formaður Dómarafélags Íslands lýsir því yfir þegar hann kemur fyrir allsherjarnefnd að tillagan kunni að fela í sér sniðgöngu á niðurstöðu æðsta dómstóls landsins og þar sé verið að grafa undan dómsvaldinu, veltir maður því fyrir sér hvort (Forseti hringir.) ekki fari að renna tvær grímur á hv. þingmann þegar hann heldur því fram að í tillögunni felist einhver sérstök (Forseti hringir.) virðing fyrir niðurstöðu Hæstaréttar.