139. löggjafarþing — 97. fundur,  22. mars 2011.

skipun stjórnlagaráðs.

549. mál
[20:27]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allshn. (Birgir Ármannsson) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það eru örfá atriði af reyndar fjölmörgum sem ég ætla að nefna í ræðu hv. þm. Höskuldar Þórhallssonar. Í fyrsta lagi finnst mér í ljósi síðustu ummæla hans rétt að geta þess að mér er ekki kunnugt um það vestræna lýðræðisríki, og þótt víðar væri leitað, þar sem það er ekki einmitt hið þjóðkjörna þing sem fer með valdið til að fjalla um stjórnarskrárbreytingar. Mér er ekki kunnugt um það. Ef hv. þingmanni er kunnugt um annað bið ég hann að upplýsa það.

Í annan stað vildi ég nefna að höfuðgagnrýni okkar á þá tillögu sem liggur hér fyrir, reyndar ekki bara gagnrýni þingmanna Sjálfstæðisflokksins heldur líka fjölmargra annarra eins og hefur verið rakið, snýst um það að með þessu sé verið að fara á svig við niðurstöðu Hæstaréttar og láta niðurstöðu kosninga gilda þó að hún hafi verið úrskurðuð eða ákvörðuð ógild.

Hvers vegna segi ég þetta? Vegna þess að allt þetta mál ber það með sér að verið er að skipa sama fólkið til að sinna sama verkefni á sömu forsendum og áður var um fjallað og valið er byggt á niðurstöðu kosningar sem úrskurðuð var ógild. Með því að breyta um nafn og með því að skipta því út að það sé Alþingi sem skipi viðkomandi einstaklinga í ráðið en ekki landskjörstjórn sem úthluti þeim kjörbréfum er að mínu mati aðeins um að ræða einhvers konar sýndarbreytingar, ekki raunverulegar efnislegar breytingar. Ég spyr hv. þingmann: (Forseti hringir.) Telur hann að stjórnlagaráðið sé efnislega raunverulega einhvern veginn öðruvísi en stjórnlagaþingið?