skipun stjórnlagaráðs.
Frú forseti. Hvernig var þetta orðað í grínþáttunum í útvarpinu um árið? Þetta væri skortur á misskilningsleysi. Það eru einhver takmörk fyrir því hvað hægt er að snúa mikið út úr í þessu máli og gera mönnum upp skoðanir. Ég hélt að þeim ystu mörkum væri nú þegar náð en það er misskilningur hjá mér, skortur á misskilningsleysi kannski.
Ég rakti í 20 mínútna ræðu að ég teldi langeðlilegast að verkefnið væri inni á þinginu. Ég sagði það líka mjög skýrt að niðurstaða Hæstaréttar hefði verið um hið kærða atriði og það sem niðurstaðan sneri að var kosningin. Ef menn ætluðu — þeir sem styddu hugmyndina um stjórnlagaþing þyrftu að byrja kosninguna upp á nýtt. (SDG: Uppkosningu.) Það er ekki mín skoðun, nei, það er sem sagt kosningin sem slík og það sem af henni leiddi var ógilt. Það þýðir að sjálfsögðu ekki að stjórnlaganefndin, undirbúningsnefndin, hafi einhvern veginn misst stoðir sínar, einungis það sem kært var og dómurinn fjallaði um. Það var það sem var dæmt ógilt og hafi menn einhvern veginn hugsað sér að byggja á því þá hefðu menn ekki forsendur lengur til þess. Það var það sem ég átti við.
Varðandi nefndina og þá hugmynd sem við höfum rætt að stjórnlaganefndin, undirbúningsnefndin, hefði áfram eitthvert hlutverk þá get ég tekið það fram aftur að ég tel skynsamlegt að nýta þá vinnu og koma með hana hingað inn í þingið. Ég er alveg sannfærður um að það er vinna sem mun nýtast við endurskoðun á stjórnarskránni. Eins og ég sagði áðan var þar ágætismannval og við gerðum rétt með því að taka þá vinnu inn í þingið og koma á fót stjórnarskrárnefnd á Alþingi og hefjast handa.