139. löggjafarþing — 97. fundur,  22. mars 2011.

skipun stjórnlagaráðs.

549. mál
[21:03]
Horfa

Frsm. meiri hluta allshn. (Róbert Marshall) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil spyrja hv. þingmann vegna þess að honum verður tíðrætt um hinn hefðbundna farveg stjórnarskrárendurskoðunar: Hefur eitthvað gerst í meðförum meiri hluta allsherjarnefndar eða meiri hluta þingsins sem kemur í veg fyrir að ráðist verði í endurskoðun stjórnarskrárinnar eftir hinum hefðbundna farvegi stjórnarskrárendurskoðunar, þ.e. hafa einhverjar þær breytingar verið gerðar sem koma í veg fyrir að það er þingið, Alþingi Íslendinga með þjóðkjörnum fulltrúum, sem kemur til með að eiga lokaorðið í þeim breytingum sem gerðar verða á stjórnarskránni?

Ég get svarað þessari spurningu fyrir hv. þingmann áður en hann kemur hingað upp. Nei, það hafa engar slíkar breytingar verið gerðar á málsmeðferðinni. Ég tók eftir orðalagi hjá hv. þingmanni þegar hann sagði að tvö ár hefðu farið í umræðu um formsatriði í málinu og það er laukrétt. Og hér erum við ekki að ræða neitt annað en formsatriði málsins vegna þess að það er á endanum hárrétt sem hv. þm. Pétur H. Blöndal sagði í frammíkalli. Hér á Alþingi situr stjórnlagaþing og það er Alþingi sem kemur til með að eiga lokaorðið um þær tillögur sem á endanum koma frá þjóðfundi, stjórnlaganefnd og stjórnlagaráði.

Hvað er það nákvæmlega sem Sjálfstæðisflokkurinn gerir athugasemdir við í því ferli sem fram undan er? Hvað er það nákvæmlega sem Sjálfstæðisflokkurinn segir að sé hin stóra synd stjórnarmeirihlutans í þessu máli vegna þess að fyrir utan umræðuna um formsaðferðina eða um formið þá hlýtur það að vera hin endanlega niðurstaða, breytingarnar sem við gerum á stjórnarskránni, sem öllu máli skiptir, eða er ekki svo hv. þingmaður?