skipun stjórnlagaráðs.
Frú forseti. Ég vék að þessu með þjóðaratkvæðagreiðslurnar í tilefni af því að hv. þingmaður tók það fram í sínu fyrra andsvari að stjórnlagaráðshugmyndin kæmi ekki í veg fyrir að þingið hefði fullt forræði og fullt vald til að ráða úrslitum um breytingar á stjórnarskránni. Ég vék að því af þessu tilefni að hér hefðu verið nefndar hugmyndir um að stjórnlagaráðið sendi málið til þjóðarinnar og margir þeirra sem taka þátt í umræðunni gefa í skyn að þingið verði í framhaldinu siðferðislega, pólitískt eða með einhverjum öðrum hætti skuldbundið til að fylgja þeirri niðurstöðu. Þessu hef ég verið mótfallinn.
Hér er spurt um það sem gerðist á árinu 2004 og sú spurning borin upp, sem mér finnst reyndar vera þessu ótengd, hvort það hafi verið sniðganga við stjórnarskrána að framkvæma ekki þjóðaratkvæðagreiðslu í tilefni af synjun forsetans. Þá er það að athuga að sú þjóðaratkvæðagreiðsla hefði verið um framtíðargildi laganna. Synjun forsetans kom ekki í veg fyrir að lögin tóku gildi. Þjóðaratkvæðagreiðslan hefði hins vegar fjallað um það hvort lögin hefðu átt að gilda til frambúðar. Í millitíðinni tók Alþingi ákvörðun um að fella lögin úr gildi og þar með var þjóðaratkvæðagreiðslan um framtíðargildi laganna orðin óþörf. Það er ekki þannig að þjóðaratkvæðagreiðslan hefði verið um það í sjálfu sér hvort einhver tiltekin lög ættu að fara á dagskrá eða eitthvað þess háttar. Frumkvæðisréttur þingsins er ekki tekinn af því með 26. gr. þannig að (Gripið fram í.) — nei, nei og frumkvæðisrétti þingsins er svo sem ekki varpað fyrir róða í þessari málsmeðferð. En við erum bara einfaldlega að segja: Þetta er óþarfi, þingið þarf ekki frekari ráðgjöf, það mun geta leitað sér ráðgjafar sérfræðinga eftir því sem þörf krefur eftir samráð flokkanna. Hinn hefðbundni vegur endurskoðunar stjórnarskrárinnar er að flokkarnir ræði sig saman um hvernig standa eigi að málum.