139. löggjafarþing — 97. fundur,  22. mars 2011.

skipun stjórnlagaráðs.

549. mál
[22:26]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er sammála hv. þingmanni um það að við vitum að gert er ráð fyrir að það þurfi tvö þing til þess að ganga frá þessu og að sjálfsögðu erum við ekki skuldbundin. Það er hins vegar mjög mikilvægt, held ég, að þeir sem taka þetta verk að sér viti hvort þeir sem ekki styðja tillöguna styðji þá að minnsta kosti í þeirri vinnu sem þeir taka að sér.

Ég vil hins vegar geta þess, frú forseti, að í ljósi þess hvernig þetta mál er allt vaxið, og í ljósi þess að lítill stuðningur verður við að fara þessa leið, er mjög óheppilegt að það liggi fyrir að stór hluti þingmanna lýsi því yfir að þeir séu á engan hátt bundnir (Forseti hringir.) …