skipun stjórnlagaráðs.
Virðulegur forseti. Við göngum til atkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu um stjórnlagaráð og gengið hefur verið úr skugga um að engin lagaleg fyrirstaða er fyrir þeirri málsmeðferð sem lögð er til. Það eru líka pólitísk rök um tíma, kostnað og samspil við önnur mál sem ráða hér för og skipta miklu máli. Stóru tíðindin eru þau að með samþykkt tillögunnar tryggjum við að næsta haust fjöllum við á Alþingi um tillögu stjórnlaganefndar, þjóðfundar og stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá sem segja má að þjóðin öll leggi fyrir Alþingi. Það eru góðar fréttir. (BirgJ: Heyr, heyr.)