stefna Íslands í málefnum norðurslóða.
Frú forseti. Hv. þingmaður er ekki ánægður með að ég skuli tengja þetta við ESB en samt tengist þetta á tvennan máta í mínum huga. Við æskjum aðildar að Evrópusambandinu, það verður ekki hjá því litið, og flokkur hv. þingmanns hefur staðið mjög ötullega að því að koma Íslandi inn í Evrópusambandið. Þetta er ekki lítið mál. Það er ekki þannig að þetta skipti engu máli í utanríkismálum. Það skiptir meginmáli hvort við göngum inn í Evrópusambandið, því að um leið og við komum þangað inn getum við t.d. ekki gert samninga við erlend ríki af því ESB tekur að sér utanríkismálin. Þetta hlýtur því að skipta miklu máli.
Á tvennan máta, sagði ég. Í fyrsta lagi hefur t.d. þýska þingið sagt að það hafni því að Ísland fái inngöngu nema við bönnum hvalveiðar. Nú vill hv. þingmaður banna hvalveiðar hvort sem er svo hann er sennilega ánægður með það, en aðrir sem vilja veiða hval, sem við höfum gert lengi og enginn hefur fært rök fyrir að skaði stofninn, telja það vera okkar rétt en hann fellur sem sagt burt ef við göngum í Evrópusambandið. Svo er hitt atriðið, sem Evrópusambandið lítur sennilega mikið til, og það er aukið vægi norðurslóða ef Íshafið opnast vegna bráðnunar, hitnunar jarðar, og þá verður mjög efnahagslega mikilvægt að eiga aðgang að norðurslóðum. Þar er Ísland einmitt mjög sterkt og hefur stórt hlið inn í þá gátt. Ef Ísland gengi í Evrópusambandið mundi það eignast þá gátt í gegnum Ísland. Hefur ekki mikið verið rætt um það að Evrópusambandið fengi þá aðgang frá Kína og Japan í gegnum Norður-Íshafið og í gegnum aðgang Íslands að norðurslóðum? Þetta mál snertir því Evrópusambandið á tvennan hátt.
Það hvort Íslendingar eru frumbyggjar eða ekki, ég sé ekki að það sé neitt meginatriði en við höfum búið hérna í þúsund ár.