139. löggjafarþing — 104. fundur,  31. mars 2011.

breytingar á Stjórnarráðinu.

[11:02]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Frú forseti. Það er rétt hjá hæstv. forsætisráðherra að þetta er stórt mál og miklu víðtækara en sem nemur þeim sviðum sem atvinnuvegaráðuneytið tekur til. Þetta snýst einmitt um það að færa hæstv. forsætisráðherra ótrúlega mikið vald yfir Stjórnarráðinu. Þannig fæ ég ekki séð hvernig þetta samrýmist ábendingum úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis vegna þess að þetta virðist fyrst og fremst til þess ætlað að forsætisráðherra hafi vald yfir öðrum ráðherrum og kannski ekki hvað síst samstarfsflokksins og auðvitað sérstaklega hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóni Bjarnasyni.

Er ekki orðið tímabært að hæstv. forsætisráðherra skeri úr um það hvað ráðherrann áformar með atvinnuvegaráðuneytið? Nú hefur þetta mál verið mjög lengi í vinnslu og ég vissi ekki að búið væri að bæta við enn fleiri nefndum og rýnihópum til að skoða þetta sem er þá væntanlega gert vegna þess að hæstv. forsætisráðherra veit að það er ekki meiri hluti fyrir málinu í þinginu. Er ekki kominn tími til að hæstv. forsætisráðherra viðurkenni að það er ekki meiri hluti fyrir þessum (Forseti hringir.) breytingum á Alþingi?