139. löggjafarþing — 104. fundur,  31. mars 2011.

stjórn vatnamála.

298. mál
[14:23]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Ég þakka þetta svar og mun heldur aldrei kalla Pollinn á Akureyri Pollhlot. [Hlátur í þingsal.]

Ég er hins vegar ekki alveg sammála hv. þingmanni um ástæðu þess að þurfa að taka upp 10. gr. með þessum hætti, en látum það liggja á milli hluta því að við höfum komist að sameiginlegri niðurstöðu þar.

Þegar hann segir hins vegar að Umhverfisstofnun hafi komist að þeirri niðurstöðu að það sem þar lá fyrir hafi ekki verið í samræmi við tilskipunina vekur það mig aðeins til umhugsunar um það hvernig sú framkvæmd er þegar verið er að innleiða tilskipanir Evrópusambandsins sem eru af ýmsum toga og þær lagðar fyrir hinar ýmsu nefndir þingsins. Ég hef átt því að venjast, og hélt að það væri alsiða, að tilskipanir sem væri verið að innleiða fylgdu í íslenskri þýðingu þeim frumvörpum sem lögð eru fram. Allra best þætti mér að hægt væri að greina það á stöðuskjali við vinnu nefnda hvaða beinu áhrif tilskipunin sem slík hefur í frumvarpinu annars vegar og hins vegar hvað er heimatilbúið. Ég hef stundum kallað það laumufarþega sem verið er að setja í lög ásamt með innleiðingu tilskipana. Ég verð að hryggja hv. þingmann með því að þó að orðið vatnshlot hafi verið notað í byggingarverkfræði og jarðfræði um berghlot er þetta í fyrsta sinn sem það er notað um vatn svo ég viti til.