139. löggjafarþing — 105. fundur,  7. apr. 2011.

varamaður tekur þingsæti.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Eins og forseti hefur þegar tilkynnt á vef þingsins tók sæti á Alþingi 4. apríl sl. Auður Lilja Erlingsdóttir í stað Álfheiðar Ingadóttur, 10. þm. Reykv. n., sem verður erlendis í opinberum erindagjörðum næstu tvær vikur. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.