139. löggjafarþing — 105. fundur,  7. apr. 2011.

umfjöllun fastanefnda um skýrslur Ríkisendurskoðunar.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að með bréfi, dags. 1. apríl 2011, hefur forseti óskað eftir því við sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um útvistun opinberra verkefna til Bændasamtaka Íslands.

Þá hefur forseti óskað eftir því við heilbrigðisnefnd með bréfi, dags. 1. apríl, að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um viðskipti heilbrigðisyfirvalda við Heimilislæknastöðina ehf.

Forseti hefur enn fremur óskað eftir því við menntamálanefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um Þjóðleikhúsið.

Þetta er í samræmi við reglur um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar sem forsætisnefnd samþykkti 12. febrúar 2008.