endurskoðun á tekjum af Lottói.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. innanríkisráðherra fyrir að taka af öll tvímæli um að ekki sé ætlunin að draga í einu eða neinu úr þeim framlögum sem Öryrkjabandalag Íslands nýtur af tekjunum af Lottóinu. Ég lýsi jafnframt þeirri skoðun minni að ég tel enga ástæðu til að gera breytingar á hlut íþróttahreyfingarinnar eða ungmennahreyfingarinnar í þessu efni heldur.
Öryrkjabandalagið hafði ásamt með íþrótta- og ungmennafélagahreyfingunni frumkvæðið að því á sínum tíma að koma upp þessari starfsemi og hefur notið til þess einkaleyfis og ég hef átt þátt í að framlengja það leyfi. Það er eðli málsins samkvæmt þess vegna sem þessi samtök hafa notið teknanna af því. Það fyrirtæki sem hér um ræðir og önnur verðug málefni eiga auðvitað að geta sótt inn á happdrættismarkað til fjáröflunar en þau málefni þurfa að þróa sínar eigin leiðir í því efni enda erum við ekki að ræða um að hér eigi hinir ýmsu aðilar að fá hlutdeild í einkaleyfi Happdrættis Háskólans. Það er alveg ljóst að það brautryðjendastarf sem Háskóli Íslands hefur unnið á því sviði er nokkuð sem hann býr að og nýtur. Það eru fullar efnislegar ástæður til að Öryrkjabandalagið og íþrótta- og ungmennafélagshreyfingin fái að njóta frumkvæðis síns í þessum efnum, en um leið sjálfsagt að skapa svigrúm til að veita öðrum leyfi til svipaðrar starfsemi og samkeppni á þessum fjáröflunarmarkaði.
Lottóið er eitt af því á Íslandi sem virkar vel og við höfum nóg af verkefnum við að laga það sem aflaga hefur farið þó að við séum ekki að eyða tíma okkar í að breyta því sem í góðu lagi er. Með því vil ég þó á engan hátt leggjast gegn því að þessi markaður sé allur skoðaður og þróunin á honum metin. Ég tel að ekki annað en (Forseti hringir.) málefnalegar ástæður búi að baki þeirri viðleitni hjá hæstv. innanríkisráðherra.